Laust er til umsóknar starf lögfræðings á skrifstofu menningar og fjölmiðla
Laust er til umsóknar starf lögfræðings á skrifstofu menningar og fjölmiðla.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir lögfræðingi til starfa á skrifstofu menningarmála og fjölmiðla.
Helstu verkefni:
· Lögfræðileg ráðgjöf um einstök verkefni skrifstofunnar í málaflokkum menningar og fjölmiðla
· Undirbúningur stjórnsýsluúrskurða og ákvarðana um lögfræðileg málefni
· Umsjón með samningu lagafrumvarpa, reglugerða og samninga
· Stefnumótun ráðherra í málaflokkum menningar og fjölmiðla
· Almenn stjórnsýslustörf
Menntunar- og hæfniskröfur:
Ráðuneytið leitar að einstaklingi sem er jákvæður og reiðubúinn til að takast á við krefjandi verkefni, er góður í mannlegum samskiptum, er nákvæmur, skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum. Skilyrði eru:
· Embættispróf eða meistarapróf í lögfræði
· Þekking og reynsla innan stjórnsýslunnar eða sambærilegum störfum
· Afar góð færni í íslensku, góð færni í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli
· Góð almenn tölvukunnátta
· Framhaldsnám eða starfsreynsla á málefnasviðum menningar og fjölmiðla er kostur
Ráðning og kjör:
Starfsmaður mun starfa á skrifstofu menningarmála og fjölmiðla. Um fullt starf er að ræða. Ráðningartími er frá 1. september 2020.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármála- og efnahagsráðherra. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um.
Umsóknir:
Ítarleg umsókn ásamt starfsferilsskrá skal berast mennta- og menntamálaráðuneyti á netfangið [email protected]. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknir um starfið gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum. Umsóknir þar sem óskað er nafnleyndar verða ekki teknar til greina.
Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2020.
Nánari upplýsingar veitir Anna María Urbancic, rekstrarstjóri, [email protected] eða í síma 545-9500
Mennta- og menningarmálaráðuneytið