Hoppa yfir valmynd
20. febrúar 2019

Embætti seðlabankastjóra

Forsætisráðuneytið auglýsir
embætti seðlabankastjóra
laust til umsóknar.

Forsætisráðherra skipar seðlabankastjóra til fimm ára í senn, sbr. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands, með síðari breytingum. Aðeins er hægt að skipa sama mann seðlabankastjóra tvisvar sinnum. Seðlabankastjóri skal fullnægja almennum starfsgengisskilyrðum skv. 6. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í hagfræði eða tengdum greinum og búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu á fjármálastarfsemi og efnahags- og peningamálum. Gerð er krafa um stjórnunarhæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum.

Við skipun í embættið mun forsætisráðherra, skv. 2. mgr. 23. gr. laga um Seðlabanka Íslands, skipa þriggja manna nefnd er hefur það hlutverk að leggja mat á hæfni umsækjenda um embættið. Verður einn nefndarmaður skipaður samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins, einn samkvæmt tilnefningu bankaráðs Seðlabanka Íslands og einn án tilnefningar og er hann formaður nefndarinnar.

Í umsókn um embættið skal greina frá nafni, kennitölu og heimilisfangi umsækjanda auk þess sem veita skal ítarlegar upplýsingar um menntun viðkomandi, starfsferil og reynslu.

Um laun og önnur starfskjör fer eftir ákvæðum laga um launa- og starfskjör seðlabankastjóra, sbr. b-lið 28. gr. laga um Seðlabanka Íslands.

Skipað verður í embættið frá og með 20. ágúst 2019.

Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2019. Vinsamlega sendið umsóknir og starfsferilskrár til forsætisráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, eða á netfang ráðuneytisins [email protected]. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um stöðuna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins.

 

Í forsætisráðuneytinu, 20. febrúar 2019.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum