Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2020

Hjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Sjúkradeild - SUMARAFLEYSING 2020

Hjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands - SUMARAFLEYSING 2020

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga í sumarafleysingar á sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn hjúkrunarfræðingsstörf á hand- og lyflækningadeild.
Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland. Verkefnin eru afar fjölbreytt og því kjörið tækifæri til að ná sér í góða reynslu.

Hæfnikröfur
Krafist er íslensks hjúkrunarleyfis. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. 

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Þórhalla Ágústsdóttir - [email protected] - 470-1453 & 891-9419
Sigríður Kristinsdóttir - [email protected] - 470-1450 & 864-0239


Nesk. Sjúkradeild
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum