Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2020

Lífeindafræðingur - Egilsstaðir - rannsóknarstofa - SUMARAFLEYSING 2020

Lífeindafræðingur - Egilsstaðir - rannsóknarstofa - SUMARAFLEYSING 2020

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða lífeindafræðing í sumarafleysingar á Heilsugæslu Egilsstaða. 
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg störf lífeindafræðings á rannsóknarstofu.

Hæfnikröfur
Íslenskt starfsleyfi.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði.
Íslenskukunnátta áskilin, sem og almenn ökuréttindi. 

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. 

Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Þórarna Gró Friðjónsdóttir - [email protected] - 470-3028 & 849-1455
Emil Sigurjónsson - [email protected] - 470-3035 & 895-2488


Egilsst. Heilsugæsla
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum