Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2019

Rekstrarstjóri - Patreksfjörður

Rekstrarstjóri á Patreksfirði

Við leitum að metnaðarfullum, jákvæðum og framsýnum leiðtoga í starf rekstrarstjóra á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði.

Staða rekstrarstjóra er nýtt starf og samræmist áherslum um að efla vægi og gæði stjórnunar innan stofnunarinnar. Rekstrarstjóri heyrir undir hjúkrunarstjóra á Patreksfirði, hann situr í rekstrarstjórn og tekur þátt í formlegu starfi deildarstjóra á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Rekstrarstjóri ber mönnunar- og rekstrarlega ábyrgð á daglegum verkefnum stoðþjónustu auk þess að leiða áætlunargerð og stefnumótun deildarinnar. Undir rekstrardeild heyrir ræsting, þvottahús, eldhús, móttökuritarar og rekstur húsnæðis. 

Helstu verkefni og ábyrgð
> Sinnir og útdeilir verkefnum sem heyra undir rekstrardeild 
> Hefur mannaforráð með starfsfólki rekstrardeildar
> Leiðir áætlanagerð og stefnumótun fyrir rekstrardeild í samstarfi við framkvæmdastjórn
> Samræmir vinnulag og þjónustu milli starfsstöðva og stuðlar að samnýtingu og hagkvæmni í rekstri, m.a. með nýtingu mannafla og í innkaupum 
> Getur gengið í störf annarra starfsmanna deildarinnar

Hæfnikröfur
> Reynsla sem nýtist í starfi
> Nám og/eða reynsla af mannaforráðum eða stjórnun æskileg 
> Áhugi á umbótaverkefnum og teymisvinnu 
> Góðir leiðtoga- og samskiptahæfileikar
> Áreiðanleiki, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi 
> Áhugi á þróun og uppbyggingu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Æskilegt er að störf hefjist 1. janúar 2020 eða eftir nánara samkomulagi. 

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu. Umsóknum er skilað rafrænt á vefsíðu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.
 

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.12.2019

Nánari upplýsingar veitir
Gylfi Ólafsson - [email protected] - 450-4500

Patreksfjörður
Stekkum 1
450 Patreksfjörður


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum