Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2020

Hjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - hjúkrunardeild - SUMARAFLEYSING 2020

Hjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - hjúkrunardeild - SUMARAFLEYSING 2020

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða í sumarafleysingar hjúkrunarfræðing á hjúkrunardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað í júní og til miðjan júlí 2020.

Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn störf hjúkrunarfræðings og aðhlynning aldraðra. 

Hæfnikröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.

Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. 

Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Anna Sigríður Þórðardóttir - [email protected] - 4701465 & 863-7030
Eva Mjöll Þorfinnsdóttir - [email protected] - 470-1482 & 776-2443


Nesk. Hjúkrunardeild
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum