Þjónustufulltrúi í Skaftafelli
Þjónustufulltrúi í Skaftafelli
Við leitum að þjónustulunduðum starfsmanni með góða umhverfisvitund til starfa í gestastofu okkar í Skaftafelli. Um tímabundið starf er að ræða út apríl með möguleika á tímabundinni framlengingu að þeim tíma liðnum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um miðjan janúar. Starfið heyrir undir þjóðgarðsvörð á suðursvæði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjónustufulltrúar starfa við afgreiðslu og upplýsingagjöf í gestastofum, afgreiðslu og umhirðu á tjaldsvæðum, ræstingar og önnur tilfallandi verkefni.
Hæfnikröfur
Þjónustufulltrúar verða að búa yfir samskiptahæfni, þjónustulund, stundvísi og umhverfisvitund. Jafnframt skulu þeir hafa gott vald á íslensku og ensku. Frekari tungumálakunnátta er kostur.
Þjónustufulltrúar í gestastofum Vatnajökulsþjóðgarðs þurfa að geta tileinkað sér þekkingu á þjóðgarðinum og nærsvæðinu og geta unnið undir álagi. Reynsla af sambærilegum störfum er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Í rafrænu umsókninni, undir liðnum Annað, þurfa að koma fram eftirfarandi upplýsingar:
- Þau réttindi og þeir hæfileikar sem óskað er eftir hér að ofan í liðnum Hæfniskröfur.
- Tungumálakunnátta.
- Öku- og vinnuvélaréttindi.
- Önnur reynsla sem umsækjandi telur að gagnist honum í starfi.
- Annað sem viðkomandi vill koma á framfæri.
Umsækjendur eru hvattir til að hengja ferilskrá við rafrænu umsóknina.
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um störfin. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 15 . janúar 2020.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.12.2019
Nánari upplýsingar veitir
Hrafnhildur Ævarsdóttir - [email protected] - 470 8302
Vatnajökulsþjóðgarður
Skaftafellsstofa
Skaftafellsstofa Skaftafelli
785 Öræfi
Smelltu hér til að sækja um starfið