Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2017

Lektor í fjármálum og alþjóðaviðskiptum - Háskólinn á Akureyri - Akureyri - 201711/1785



Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa 100% stöðu lektors í fjármálum og alþjóðaviðskiptum við viðskiptadeild viðskipta- og raunvísindasviðs

Leitað er að sérfræðingi á sviðum fjármála og greinum tengdum rekstri fyrirtækja, en þó sérstaklega á sviðum almennra fjármála og alþjóðaviðskipta þar sem tenging við sjávarútveg væri æskileg, rekstrarhagfræði, stefnumótun og tölfræði. Krafist er grunnmenntunar í viðskiptafræðum og þurfa umsækjendur að hafa sterkan grunn í aðferðafræði rannsókna.

Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2018. Ráðningartími er tímabundinn til fimm ára en viðkomandi getur óskað eftir ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum samkvæmt reglum nr. 258/2016 um störf dómnefndar og ráðningar akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri. Framgangur í stöðu dósents eða prófessors kemur til greina við ráðningu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar. 

Helstu verkefni eru kennsla og rannsóknir á ýmsum sviðum fjármála og alþjóðaviðskipta við viðskiptadeild, sem einnig eru samkennd námskeið með auðlindadeild, ásamt því að koma að uppbyggingu framhaldsnáms við deildina. Næsti yfirmaður er deildarformaður viðskiptadeildar. 

Við viðskiptadeild háskólans eru um 400 nemendur og 13 akademískir starfsmenn. Allt grunnnám í viðskiptafræðum er kennt í sveigjanlegu námi og við deildina er boðið upp á rannsóknartengt framhaldsnám á meistara- og doktorsstigi.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjandi skal hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla á einhverju ofangreindra sérfræðisviða.
Kennslureynsla á háskólastigi og reynsla af vísindastörfum teljast nauðsynleg.
Reynsla úr atvinnulífi eða opinberum rekstri er æskileg.
Umsækjandi skal sýna fram á hæfni til að kenna og stunda rannsóknir á einhverju af ofantöldum sviðum. Víðtæk þekking á öðrum sviðum viðskiptafræða er einnig æskileg. 
Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum, samstarfslipurðar og skipulagshæfni.
Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir viðskiptadeildar. 

Umsókn skal fylgja:
Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu. 
Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaráherslur ef til ráðningar kemur.
Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum.
Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eftir því sem við á. 
Tilnefna skal þrjá meðmælendur, æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi starfi eða fyrra starfi umsækjanda. 
Þær fræðilegu ritsmíðar sem umsækjandi telur sín bestu verk (allt að þremur ritum). Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. 

Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólakennara á Akureyri og fjármálaráðherra.

Umsóknarfrestur er til 4. desember 2017. Umsókn og fylgigögn skal senda skrifstofu rektors á netfangið [email protected]. Ekki er notað staðlað umsóknaeyðublað. 

Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglur nr. 387/2009 fyrir Háskólann á Akureyri og reglur nr. 258/2016 um störf dómnefndar og ráðningar akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri.  Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar gefa Guðmundur Kristján Óskarsson, formaður viðskiptadeildar, netfang:  [email protected] og Rannveig Björnsdóttir forseti viðskipta- og raunvísindasviðs, netfang [email protected]

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um laus störf.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum