Hoppa yfir valmynd
23. júní 2020

Lektor við iðjuþjálfunarfræðideild heilbrigðisvísindasviðs

Lektor við iðjuþjálfunarfræðideild heilbrigðisvísindasviðs
Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar 80% starf lektors við iðjuþjálfunarfræðideild HA. Staðan er veitt frá og með 1. janúar 2021. Ráðningartími er tímabundinn til fimm ára en viðkomandi getur óskað eftir ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum samkvæmt reglum nr. 258/2016 um störf dómnefndar og ráðningar akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri. Framgangur í stöðu dósents eða prófessors kemur til greina við ráðningu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar.

 

Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er að öflugum einstaklingi innan iðjuþjálfunar með löggildingu í iðjuþjálfun. Umsækjandi þarf að hafa sérfræðiþekkingu á sviði sem tekur til þátttöku og lífsgæða barna og rannsóknareynslu sem er vottuð með ritrýndum birtingum á fræðasviðinu á alþjóðlegum vettvangi tengt því fræðasviði. Helstu verkefni eru kennsla í iðjuþjálfunarfræðum, rannsóknir á fræðasviðinu og þátttaka í stjórnun. Næsti yfirmaður er formaður iðjuþjálfunarfræðideildar. Starfsvettvangur er Háskólinn á Akureyri. 

Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn sem býður uppá nám í iðjuþjálfunarfræði á Íslandi. Námið er sveigjanlegt þriggja ára nám til BS prófs auk nýstofnaðs viðbótarnáms í iðjuþjálfun á meistarastigi til starfsréttinda. Niðurstöður kannana meðal nemenda sýna ánægju með gæði og innihald námsins. Nám í iðjuþjálfunarfræði er fyrir öll kyn. Fjöldi nemenda á hverju ári er u.þ.b. 20 - 25. Fastráðnir starfsmenn deildarinnar eru 9 manna metnaðarfullur hópur, samsettur af akademískum starfsmönnum, verkefnastjóra og aðjúnktum. Einnig koma fjölmargir stundakennarar að kennslu í deildinni bæði í fræðilegu og verklegu námi. 

 

Hæfnikröfur
Umsækjandi skal hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi í iðjuþjálfunarfræði, félags og/eða heilbrigðisvísindum frá viðurkenndum háskóla. Áherslusvið skal vera tengt iðjuþjálfunarfræði.
Umsækjandi hafi sýnt góðan árangur í kennslu og sé virkur í rannsóknum. Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæðis, sjálfstæðis í vinnubrögðum, skipulagshæfni ásamt góðri hæfni til að miðla þekkingu.
Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli

Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir kennslu- og rannsóknarþarfir Heilbrigðisvísindasviðs.

Umsókn skal fylgja:

Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.
Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaráherslur.
Staðfest afrit af prófskírteinum.
Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda.
Tilnefna skal þrjá meðmælendur. Æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður umsækjanda í núverandi eða fyrra starfi.
Fræðilegar ritsmíðar sem umsækjandi telur sín bestu verk (allt að fimm ritum). Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. 

Við ráðningu verður miðað við, að starfið falli sem best að aðstæðum og þörfum Iðjuþjálfunarfræðideildar Háskólans á Akureyri. 

 

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga nr. 63/2006 um háskóla, laga nr. 84/2008 um opinbera háskóla, reglna nr. 387/2009 fyrir Háskólann á Akureyri og reglna nr. 258/2016 um störf dómnefndar og ráðningar akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri. Ófullnægjandi umsóknir verða ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér jafnframt rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur karla jafnt sem konur til að sækja um laus störf.

Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 27.07.2020

 

Nánari upplýsingar veitir
Eydís Kr Sveinbjarnardóttir - [email protected], forseti heilbrigðisvísindasviðs - 4608482
Sólrún Óladóttir - [email protected], formaður iðjuþjálfunardeildar - 4608476


Háskólinn á Akureyri
Heilbrigðisvísindasvið
Norðurslóð 2
600 Akureyri


Sækja um starf


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum