Hoppa yfir valmynd
31. október 2018

Framhaldsskólakennari í rafiðngreinum


Framhaldsskólakennari í rafiðngreinum – Fjölbrautaskóli Vesturlands

Við Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi er laus til umsóknar 100% staða framhaldsskólakennara í rafiðngreinum.
Umsækjandi þarf að hafa sveinspróf í rafvirkjun. Æskilegt er að umsækjandi hafi háskólapróf í rafmagnstæknifræði, rafmagnsverkfræði eða rafmagnsiðnfræði.

Ráðning og kjör:
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans. Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en í umsókn þarf að greina frá menntun, fyrri störfum og öðru því sem umsækjandi telur að máli skipti. 

Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti til Ágústu Elínar Ingþórsdóttur, skólameistara, [email protected], fyrir 19. nóvember 2018. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 

Jafnt konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Sakavottorð fylgi umsókn.

Á heimasíðu skólans, www.fva.is, eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans.

Skólameistari

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum