Hoppa yfir valmynd
13. júlí 2018

Framhaldsskólakennari í íslensku

Framhaldsskólakennari í íslensku við FB vegna afleysinga
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti óskar eftir að ráða kennara í íslensku á haustönn 2018 vegna afleysinga.

Helstu verkefni og ábyrgð
Kennari ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi, námsmati og faglegu samstarfi ásamt gerð kennsluáætlana og prófa. Skólinn notar Innu skóla- og kennslukerfi og Moodle dreifnámskerfi sem kennari þarf að vera tilbúinn til að vinna með.

Hæfnikröfur
Lögð er áhersla á menntun í íslensku, kennsluhæfni og samskiptahæfileika í faglegu og þverfaglegu samstarfi. Einnig er lögð áhersla á frumkvæði í starfi, sjálfstæð vinnubrögð, áhuga og áreiðanleika.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Við ráðningu skulu liggja fyrir afrit prófskírteina, staðfesting á kennsluréttindum á framhaldsskólastigi og sakavottorð. 

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti býður verknám, listnám og bóknám til lokaprófs úr framhaldsskóla. Kennt er í dagskóla, kvöldskóla og sumarskóla. Á heimasíðunni, www.fb.is er að finna upplýsingar um stefnu skólans. Sýn okkar er að við eflum einstaklinga til þess að skapa framtíðina. Gildi skólans eru virðing, fjölbreytni og sköpunarkraftur. Helsta stefnumið skólans er að sérhver nemandi nái árangri í námi sínu en við hlúum jafnframt að athafnagleði, samvinnu og ábyrgum lífsmáta nemenda og starfsfólks.

Umsóknir skulu berast á rafrænu formi í gegnum ráðningarkerfi Oracle, sjá tengil hér að neðan. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin. Haldið verður eftir afriti af umsóknargögnum í samræmi við ákvæði laga um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985. Áskilinn er réttur til að nýta auglýsinguna í 6 mánuði frá ráðningu.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.08.2018

Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir - [email protected] - 899-2123
Magnús Ingvason - [email protected]s                                                                    

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari



Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum