Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2019

Talmeinafræðingur/ hlutastarf

Talmeinafræðingur/ hlutastarf á Landspítala

Talmeinafræðingur óskast til starfa við talmeinaþjónustu Landspítala. Starfshlutfall er 50-60%, æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Hjá talmeinaþjónustu Landspítala fer fram fjölbreytt starfsemi við greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna tal- og raddmeina, málstols og kyngingartregðu einstaklinga á öllum aldri. Möguleiki er á sérhæfingu innan fagsins. Á vegum deildarinnar fer fram reglubundin fræðsla heilbrigðisstétta. Á deildinni starfa um 10 talmeinafræðingar í öflugu þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar deildir spítalans. 

Helstu verkefni og ábyrgð
» Greining, meðferð og ráðgjöf vegna tal- og máltruflana
» Greining, meðferð og ráðgjöf vegna kyngingartregðu
» Þverfagleg teymisvinna
» Sérhæfð verkefni sem heyra undir fagsvið talmeinafræði

Hæfnikröfur
» Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma
» Hæfni og geta til að starfa í teymi
» Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi 
» Frumkvæði, yfirsýn og skipulagsfærni
» Íslenskt starfsleyfi 
» MS próf í talmeinafræði
» Doktorsgráða og reynsla af rannsóknarstörfum æskileg

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Fræðagarður hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 50 - 60%
Umsóknarfrestur er til og með 09.09.2019

Nánari upplýsingar veitir
Elísabet Arnardóttir - [email protected] - 825 3872
Bára Benediktsdóttir - [email protected] - 824 5909


Landspítali
Talmeinaþjónusta
Grensási
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum