Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2018

Verkefnastjóri í eldhúsi og matsölum

VERKEFNASTJÓRI Í ELDHÚSI OG MATSÖLUM - FJÖLBREYTT OG SPENNANDI STARFSUMHVERFI
 
Rekstrarsvið Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf verkefnastjóra í eldhúsi og matsölum. Í eldhúsi og matsölum Landspítala er rekið eitt stærsta framleiðslueldhús á Íslandi þar sem framleiddar eru daglega um 5.000 máltíðir fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsmenn. Á deildinni eru jafnframt reknir 9 matsali fyrir starfsfólk ("ELMA"). 

Leitað er að einstaklingi með menntun í næringarfræðum og reynslu af verkstjórn. Viðkomandi þarf að búa yfir mikilli samskiptahæfni og brennandi áhuga á framþróun þjónustu, að mæta þörfum ólíkra hópa og innleiða bætta ferla. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og býður upp á lifandi starfsumhverfi og gefandi samstarf við ólíka einstaklinga. Í matsölum og eldhúsum Landspítala starfa rúmlega 100 manns af 13 þjóðernum. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Teymisstjóri í matseðlateymi eldhússins 
» Ábyrgð á framleiðsluáætlun matargerða
» Dagleg umsjón með matseðlakerfi
» Yfirumsjón með heimasíðu og fræðslu fyrir klínískar deildir
» Ábyrgð á tengiliðastarfi eldhúss við klínískar deildir spítalans 

Hæfnikröfur
» B.Sc, næringarfræði, matvælafræði, næringarekstrarfræði eða sambærileg háskólamenntun
» Framhaldmenntun æskileg
» Reynsla af verkefnastjórn
» Leiðtogafærni, örugg framkoma og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
» Fagleg vinnubrögð og skipulagshæfni
» Metnaður, frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5.500 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.11.2018

Nánari upplýsingar veitir
Sigrún Hallgrímsdóttir - [email protected] - 543 5205
Viktor Ellertsson - [email protected] - 543 1517

LSH Skipulag og næringarráðgjöf ELM
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum