Framhaldsskólakennarar í rafiðngreinum
Framhaldsskólakennarar í rafiðngreinum – Fjölbrautaskóli Vesturlands
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi eru lausar til umsóknar tvær 100% stöður framhaldsskólakennara í rafiðngreinum.
Umsækjandi þarf að hafa sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun. Æskilegt er að umsækjandi hafi háskólapróf í rafmagnstæknifræði, rafmagnsverkfræði eða rafmagnsiðnfræði.
Ráðning og kjör:
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans. Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en í umsókn þarf að greina frá menntun, fyrri störfum og öðru því sem umsækjandi telur að máli skipti.
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti til Ágústu Elínar Ingþórsdóttur, skólameistara, [email protected], til 3. júní 2019. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Jafnt konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Á heimasíðu skólans, www.fva.is, eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans.
Skólameistari