Hoppa yfir valmynd
23. maí 2019

Skipaeftirlitsmaður

Starfið: Samgöngustofa óskar eftir að ráða skipaeftirlitsmann í deild skipaeftirlits- og leyfisveitinga. Starfið felst í að sinna eftirliti með skipum, útgáfu starfsleyfa, gerð skoðunarhandbóka og verklagsreglna, eftirliti með skoðunaraðilum skipa og önnur verkefni er til falla. Starfshlutfall er 100% um þrjú stöðugildi er að ræða, starfsstöð í Reykjavík.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Hafa lokið námi í skipa- eða véltæknifræði, skipa- eða vélaverkfræði, skipasmíði, vera handhafi skírteinis til skipstjórnar eða vélstjórnar eða vélvirkjun.
  • Marktæka reynslu af umsjón eða eftirliti með ástandi skipa og skipsbúnaðar, skipahönnun eða viðhaldi er kostur.
  • Þekking á kröfum um öryggi skipa.
  • Hafi góða þekkingu og færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti. Kostur er að búa yfir þekkingu í einu Norðulandamáli.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.

Í boði er spennandi starf hjá metnaðarfullri stofnun í alþjóðlegu umhverfi. Við bjóðum uppá góða starfsaðstöðu og frábæra vinnufélaga.

Umsóknarfrestur er til  11. júní 2019.

Hægt er að sækja um starfið rafrænt á www.samgongustofa.is/storf.

Nánari upplýsingar veitir Geir Þór Geirsson, deildarstjóri skipaeftirlits í síma 480 6000.
Öllum umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf. Í ráðningarferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfi hjá stofnuninni.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef staða losnar á ný. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Samgöngustofa áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Hjá Samgöngustofu er lögð áhersla á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, frumkvæði og þátttöku, auk þess sem mötuneytið er frægt fyrir frábæran mat. Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun samgöngumála sem annast eftirlit með flugi, siglingum og umferð. Á hverjum degi erum við að læra hvert af öðru og sinna viðskiptavinum af kostgæfni með það að markmiði að verða betri og betri. Frekari upplýsingar um Samgöngustofu er að finna á vef stofnunarinnar www.samgongustofa.is

 

Samgöngustofa

www.samgongustofa.is

Ármúli 2 – 108 Reykjavík

Sími: 480-6000

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum