Hoppa yfir valmynd
27. apríl 2010 Dómsmálaráðuneytið

Gjaldskrá fyrir stefnuvotta nr. 341/2010

1. gr.

Þóknun fyrir birtingu.

Fyrir birtingu á hvers konar tilkynningu, skal greiða stefnuvotti 1.975 kr. þóknun, vegna hvers manns sem hún er birt fyrir.

2. gr.

Aksturskostnaður.

Stefnuvottur skal fá greiddan aksturskostnað, 1.485 kr. vegna hverrar birtingar. Ef birtar eru samtímis fleiri en ein tilkynning á hendur sama manni eða tveimur einstaklingum á sama heimili, skal þó aðeins greiða aksturskostnað fyrir eina birtingu.

Fari stefnuvottur á fleiri en einn stað í sömu ferð skal aksturskostnaður skiptast á milli jafnmargra og viðkomustaðirnir eru.

Sé um lengri veg að fara en 30 kílómetra skal aksturskostnaður ákveðinn í samræmi við akstursgjald sem ákveðið hefur verið fyrir ríkisstarfsmenn.

3. gr.

Póstkostnaður.

Póstkostnaður vegna birtingar skal greiddur af þeim sem æskir birtingarinnar.

4. gr.

Ómaksþóknun.

Endursendi stefnuvottur tilkynningu án þess að birting hafi tekist, skal hann fá aksturs­kostnað greiddan að fullu, en að auki skal hann fá greidda ómaksþóknun og skal hún vera að fjárhæð kr. 1.270.

5. gr.

Gildistaka.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 4. mgr. 81. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91. 31. desember 1991, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 229/1992.

Gjaldskrá fyrir stefnuvotta nr. 341/2010
Auglýsing um breytingu á gjaldskrá nr. 354/2010

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum