Hoppa yfir valmynd
5. desember 2019

Rannsóknastaða í nafni dr. Kristjáns Eldjárns

Rannsóknastaða í nafni dr. Kristjáns Eldjárns

Þjóðminjasafn Íslands auglýsir lausa til umsóknar sérstaka rannsóknarstöðu tengda nafni dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands, sbr. 3. gr. a. laga um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011.

Helstu verkefni og ábyrgð
Staðan er auglýst til eins árs. Fræðimaður skal senda inn umsókn, þar sem verkefnið er vandlega skilgreint og hvernig það verði til að efla menningarsögulegar rannsóknir. Verkefnið skal skilgreint sem eins árs verkefni.

Verkefni, eins og það er afmarkað, lýkur með formlegum verklokum að ráðningartíma liðnum. Stefnt skal að því að niðurstöður rannsókna verði birtar á viðurkenndum fræðilegum vettvangi eftir verklok en auk þess skulu þær kynntar með fyrirlestri, sýningu eða öðrum hætti innan Þjóðminjasafns Íslands. Rannsóknarniðurstöður skulu jafnframt varðveittar í Þjóðminjasafni Íslands.

Hæfnikröfur
Í reglugerð nr. 896/2006 segir: "Staðan er ætluð fræðimönnum, er sinna rannsóknum á sviði íslenskrar menningarsögu sem fellur undir starfssvið Þjóðminjasafns Íslands. Rannsóknaverkefnum sem unnið er að í rannsóknarstöðu Kristjáns Eldjárns er ætlað að efla rannsóknastarfsemi Þjóðminjasafns Íslands. Við ráðningu í stöðuna er m.a. tekið mið af rannsóknastefnu Þjóðminjasafnsins og stöðu þess sem háskólastofnunar. Til greina kemur að tengja sjálfstæða rannsókn við stór rannsóknaverkefni sem þegar er unnið eða hefur verið unnið að innan safnsins. 

Fræðimaður sem gegnir rannsóknarstöðu Kristjáns Eldjárns hefur aðstöðu hjá viðeigandi starfsstöð innan Þjóðminjasafns Íslands í samræmi við rannsóknarverkefnið. Fræðimaður skal leggja sitt af mörkum til að efla rannsóknarstarf safnsins og taka þátt í að veita nýjum straumum inn í fræðilega umræðu. 

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Fræðagarður hafa gert.
Í samræmi við ákvæði í reglugerð nr. 896/2006 ákvarðar Þjóðminjavörður um launakjör fræðimannsins, innan marka kjarasamninga og fjárheimilda. 
 
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Hildur Halldórsdóttir - [email protected] - 5302239


Þjóðminjasafn Íslands 
Suðurgata 41
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum