Hoppa yfir valmynd
17. ágúst 2019

Sérfræðilæknir í myndgreiningu á röntgendeild

 
Landspítali leitar eftir jákvæðum og metnaðarfullum sérfræðilækni með sérhæfingu í myndgreiningu í krefjandi starf á röntgendeild. Viðkomandi mun verða mikilvægur hlekkur í öflugu teymi myndgreiningardeildar, en deildin sinnir öllum þáttum á sviði læknisfræðilegrar myndgreiningar og geislavarna á spítalanum. 

Lögð áhersla á endurnýjun tækjabúnaðar, þróun nýrra starfsaðferða, aðlögun vinnutíma að þörfum starfsmanna, stöðuga starfsþróun og góða starfsaðstöðu. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. október 2019 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Greiningar, inngrip og meðferð út frá rannsóknaraðferðum deildarinnar
» Ráðgjöf og samráð við fagaðila innan og utan Landspítala
» Skipulag og verkefnaumsjón
» Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
» Þátttaka í kennslu og vísindavinnu 

Hæfnikröfur
» Breið þekking og reynsla i öllum helstu rannsóknaraðferðum myndgreiningar
» Íslensku og ensku kunnátta
» Reynsla af rannsóknarinngripum s.s. ástungum vegna sýnatöku og dreninnlagna er æskileg
» Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
» Skilyrði að íslenskt sérfræðileyfi í myndgreiningu liggi fyrir áður en starf hefst

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í kjarasamningi lækna og ríkisins 2015. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt sérprentun eða ljósriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað.
Mat stöðunefndar læknaráðs Landspítala byggist á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða við umsækjendur og ákvörðun um ráðningu í starfið byggir einnig á þeim. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

ATH. Fylla þarf út lágmarksupplýsingar í almenna umsókn og senda sem viðhengi, en ítarlegri upplýsingar fyllist út í umsókn fyrir læknastöðu, sjá slóð hér fyrir neðan:

Umsókn um læknisstöðu - umsóknareyðublað Embættis landlæknis

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.09.2019

Nánari upplýsingar veitir
Pétur Hörður Hannesson - [email protected] - 824 5322


Landspítali
Röntgendeild, læknar 1
Fossvogi
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum