Hoppa yfir valmynd
30. júní 2020

Starf á skrifstofu framhaldsskóla og –fræðslu

Starf á skrifstofu framhaldsskóla og –fræðslu 

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf á skrifstofu framhaldsskóla og fræðslu. 

Um er að ræða fjölbreytt starf með áherslu á starfsmenntamál. Starfið felur í sér þátttöku í stefnumótun, áætlanagerð og eftirliti í samræmi við lög um opinber fjármál, lög um framhaldskóla og framhaldsfræðslu. Starfsmaður er tengiliður ráðuneytisins við nokkra framhaldsskóla, heldur utan um samninga er varða starfsmenntamál og kemur sérstaklega að stefnumótun og afgreiðslu mála er varða starfsmenntun. Hann undirbýr afgreiðslu erinda, gerð skýrslna, minnisblaða og ávarpa. Miðað er við að umsækjanda geti verið falið að vinna við önnur málefni ráðuneytisins.


Menntun og hæfnikröfur:
Haldbær reynsla af greiningu og framsetningu gagna. 
Reynsla af stefnumótun og verkefnisstjórnun.
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Færni í mannlegum samskiptum og skipulagsfærni.
Mjög góð færni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti á íslensku og ensku/norðurlandamáli.
Reynsla stjórnunarstörfum í framhaldsskóla er kostur.
Þekking á starfsmenntakerfinu, lagaumhverfi framhaldsskólastigsins og stjórnsýslulögum er kostur.
Bakgrunnur og reynsla á sviði starfsmennta eða háskólamenntun sem nýtist í starfi.

Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins eða samkvæmt Félagi starfsmanna Stjórnarráðsins eftir því sem við á. Nánari upplýsingar veitir Björg Pétursdóttir, settur skrifstofustjóri, í síma 545-9500.

Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn sína til mennta- og menningarmálaráðuneytisins á [email protected].

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum. Við ráðningar í störf hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu er tekið mið af
jafnréttisáætlun ráðuneytisins og eru karlmenn jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið.

Hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu starfa um 70 starfsmenn með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Ráðuneytið er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem lögð er áhersla á samvinnu og góðan starfsanda. Skrifstofa framhaldsskóla og -fræðslu fjallar um málefni framhaldsskólastigsins og framhaldsfræðslu. Hún aðstoðar ráðherra við yfirstjórn stofnana og sjóða sem annast framkvæmd stjórnarmálefna er undir hann heyra og hefur eftirlit með starfsemi og fjárreiðum þeirra.

Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2020.

 
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum