Hoppa yfir valmynd
28. mars 2019

Lektor í lögfræði

 
Staða lektors í lögfræði með áherslu á heimskautarrétt 
við lagadeild hug- og félagsvísindasviðs

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 8. maí 2019

Háskólinn á Akureyri auglýsir eftir akademískum starfsmanni í lögfræði, með a.m.k. lektorshæfi, með góða þekkingu á heimskautarétti, meðal annars á sviði þjóðaréttar, hafréttar, auðlindaréttar, frumbyggjaréttar og/eða mannréttindalögfræði með áherslu á heimskautasvæði. Umsækjendur þurfa að geta sinnt fræðastörfum á þessum sviðum samhliða kennslu í grunn- og framhaldsnámi lögfræði. Þeir þurfa að geta tekið virkan þátt í framkvæmd og þróun sveigjanlegs náms. Sérstaða laganáms við Háskólann á Akureyri felst í framsýnu, sveigjanlegu námi þar sem ekki er gerður greinarmunur á staðnámi og fjarnámi.

Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2019, eða samkvæmt samkomulagi. Ráðningartími er tímabundinn til fimm ára en viðkomandi getur óskað eftir ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum samkvæmt reglum nr. 258/2016 um störf dómnefndar og ráðningar akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri. Framgangur í stöðu dósents eða prófessors kemur til greina við ráðningu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar.   

Helstu verkefni eru rannsóknir og kennsla, bæði á grunnstigi og meistarastigi, stjórnsýslustörf, þróun sveigjanlegs náms og aðkoma að uppbyggingu náms við deildina, þar á meðal doktorsnáms. Næsti yfirmaður er deildarformaður lagadeildar. Starfstöð er á Akureyri. 

Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjendur skulu hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið, staðfest með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla, sbr. 1. mgr. 16. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla
Kennslu- og stjórnunarreynsla á háskólastigi er æskileg og fræðiskrif eru nauðsynleg 
Krafist er hæfni í mannlegum samskiptum og góðrar skipulagshæfni
Grunnþekking í íslensku æskileg og að umsækjandi uppfylli skilyrði í samræmi við málstefnu skólans á starfstíma
Krafist er góðrar enskukunnáttu en kennsla í heimskautarrétti fer fram á ensku
Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir lagadeildar Háskólans á Akureyri

Umsókn skal fylgja:
Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu 
Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaráherslur ef til ráðningar kemur
Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum
Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eftir því sem við á 
Tilnefna skal þrjá meðmælendur, æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi starfi eða fyrra starfi umsækjanda 
Þær fræðilegu ritsmíðar sem umsækjandi telur sín bestu verk (þrjú til fimm rit) Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins

Umsóknarfrestur er til 8. maí 2019. Umsókn skal senda ásamt fylgigögnum á skrifstofu rektors á netfangið [email protected]. Ekki er notað staðlað umsóknareyðublað.

Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólakennara á Akureyri og fjármálaráðherra.

Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga nr. 63/2006 um háskóla, laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglna nr. 387/2009 fyrir Háskólann á Akureyri og reglna nr. 258/2016 um störf dómnefndar og ráðningar akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veitir Rachael Lorna Johnstone, prófessor við lagadeild, netfang [email protected], sími 460 8666, Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, formaður lagadeildar, netfang [email protected], sími 460 8655. 

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um laus störf.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum