Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2019

Forritari

 
Forritari

Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í starf forritara á sviði upplýsingatækni. Upplýsingatækni annast þróun, rekstur og viðhald á tölvukerfum og hugbúnaði bankans
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík

Helstu verkefni og ábyrgð
- Nýsmíði, þróun og viðhald hugbúnaðarlausna
- Greining, hönnun og forritun
- Skjölun og prófanir
- Samskipti við notendur og samstarfsaðila

Hæfnikröfur
- Háskólapróf í tölvunarfræðum, hugbúnaðarverkfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla og þekking á forritun í NET umhverfi (C#, ASP.NET)
- Reynsla og þekking á forritun er tengist SQL Server 
- Reynsla og þekking á framendaforritun
- Þekking á agile aðferðarfræði er kostur
- Geta til þess að setja sig inn í og tileinkað sér nýja tækni og/eða aðferðir
- Góð greiningarhæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Hæfni til að starfa sjálfstætt og í hópi
- Frumkvæði, nákvæmni og metnaður í starfi
- Góð þjónustulund

Frekari upplýsingar um starfið
Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is en umsóknarfrestur er til og með 28. janúar 2019. Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.01.2019

Nánari upplýsingar veitir
Logi Ragnarsson, framkvæmdastjóri upplýsingatækni, netfang: [email protected] og Íris Guðrún Ragnarsdóttir, mannauðsstjóri, netfang: [email protected].

Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum