Hoppa yfir valmynd
18. október 2018

Lektor í frumulíffræði

Lektor í frumulíffræði – Heilbrigðisvísindasvið - Háskóli Íslands – Reykjavík

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í frumulíffræði innan fræðasviðs líffærafræði við Læknadeild Háskóla Íslands.

Lektorinn mun sjá um kennslu í frumulíffræði innan fræðasviðs líffærafræði við Læknadeild. Jafnframt mun lektorinn taka þátt í framtíðarmótun fræðasviðsins og þarf að vera tilbúinn að sinna kennslu í skyldum greinum ef þörf er á, m.a. vegna rannsóknaleyfa annarra kennara. Þá er gert ráð fyrir að lektorinn stundi rannsóknir á sviði frumulíffræði og sinni handleiðslu meistara- og doktorsnema. Mikilvægt er að sérþekking og rannsóknir lektorsins séu á sviði grunnvísinda með tengingu við heilbrigðisvísindi.

Læknadeild er hluti af Lífvísindasetri Háskóla Íslands og hefur yfir að búa góðri aðstöðu og nútímalegum tækjakosti til rannsókna á framangreindum sviðum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi í frumulíffræði eða skyldum greinum eða prófi sem jafnað verður til doktorsprófs, eða jafngild hæfni að mati dómnefndar.
  • Reynsla af sambærilegri kennslu á háskólastigi .
  • Reynsla af leiðbeiningu til æðri háskólagráðu er kostur.
  • Reynsla af rannsóknum á sviði frumulíffræði, umsjón rannsóknaverkefna, skýrar rannsóknaáherslur og reynsla í öflun vísindastyrkja.
  • Krafist er góðrar samstarfshæfni og lipurðar í mannlegum samskiptum.
  • Áreiðanleiki, frumkvæði, framsýni og sjálfstæði í vinnubrögðum, ásamt góðri færni í að miðla eigin þekkingu.

Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum fræðasviðsins líffærafræði og Læknadeildar.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Rektor er heimilt að veita framgang í starfi strax við nýráðningu uppfylli viðkomandi þau skilyrði sem kveðið er á um í reglum nr. 263/2010 um framgang og tímabundna ráðningu akademískra starfsmanna við Háskóla Íslands.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.

Nánari upplýsingar um starfið veita Hannes Petersen, prófessor ([email protected]) og Engilbert Sigurðsson, forseti Læknadeildar ([email protected] / s. 525-4879).

Umsóknarfrestur er til og með 19. nóvember 2018.

Sótt er um starfið á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf.

Umsækjendur skulu láta fylgja með umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og rannsóknaráætlun ef til ráðningar kemur. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Ef ekki er unnt að skila fylgigögnum með umsókn á rafrænu formi skal skila þeim í þríriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

 

Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.

Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum