Hoppa yfir valmynd
21. júní 2018

Nýdoktor til rannsókna á sviði hreyfivísinda

Nýdoktor til rannsókna á sviði hreyfivísinda – Rannsóknarstofa í hreyfivísindum - Námsbraut í sjúkraþjálfun - Háskóli Íslands - Reykjavík

Leitað er eftir hæfileikaríkum og áhugasömum nýdoktor í starf við rannsóknir á sviði hreyfivísinda. 

Ábyrgðarmaður rannsókna er Kristín Briem, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands. 
Rannsóknirnar beinast aðallega að áhættuþáttum hnjámeiðsla. Ætlast er til að nýdoktorinn taki þátt í gagnaöflun, en leggi áherslu á að leggja fram tilgátur og prófi þær með úrvinnslu og greiningu gagna. Starfið felur einnig í sér skrif handrita til birtingar í vísindatímaritum og kynningu niðurstaðna á innlendum og erlendum ráðstefnum. Nýdoktorinn mun jafnframt taka þátt í að leiðbeina meistara- og doktorsnemum og skrifum á styrkumsóknum. Vinnan fer fram í þverfaglegu og alþjóðlegu rannsóknarumhverfi. 

Hæfniskröfur:
Við leitum eftir umsækjendum með doktorsgráðu (Ph.D.) á sviði hreyfivísinda eða sambærilegu sviði, með viðeigandi birtingarsögu (einnig greinar sem fyrsti höfundur). Umsækjandi þarf þannig að hafa sterkan grunn í líffæra- og lífaflfræði, og viðeigandi reynslu hvað varðar notkun tækja og hugbúnaðar til mælinga og úrvinnslu á slíkum rannsóknargögnum. Reynsla á sviði sjúkraþjálfunar er kostur. Umsækjendur verða að hafa góða samskiptahæfileika á ensku, bæði hvað varðar talað mál og akademísk skrif. 

Umsóknir: 
Vinsamlega sækið um starfið á heimasíðu Háskóla Íslands undir laus störf.

Umsækjendur skulu senda ferilskrá sína, auk bréfs sem tilgreinir rannsóknarreynslu þeirra, lista yfir birtingar, markmið í starfi, auk nafna, síma og netfanga tveggja akademískra meðmælenda.

Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2018. 

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. 

Staðan er styrkt í tvö ár af Rannsóknarsjóði Vísinda- og tækniráðs og eru laun greidd samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf sem fyrst, eftir nánara samkomulagi. 

Vinsamlega hafið samband við Kristínu Briem ef óskað er frekari upplýsinga ([email protected]). 

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands. 

Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum