Hoppa yfir valmynd
29. apríl 1998 Innviðaráðuneytið

Skorradalshreppur - Túlkun á hvenær skylt verður að sameina sveitarfélagið öðru

Skorradalshreppur                                                 29. apríl 1998                                                     98020026

Davíð Pétursson oddviti                                                                                                               1031-3505

Grund

311 Borgarnes

Vísað er til erindis yðar til ráðuneytisins, dagsett 23. apríl 1998, varðandi hvort 107. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 eigi við um Skorradalshrepp ef úrskurður Hagstofu Íslands verður á þá lund að íbúar Skorradalshrepps hafi verið undir 50 þann 1. desember 1997.

Í 2. mgr. 5. gr. sveitarstjórnarlaga segir m.a. svo: “Nú hefur íbúafjöldi sveitarfélags verið lægri en 50 í þrjú ár samfleytt og skal ráðuneytið þá eiga frumkvæði að því að sameina það nágrannasveitarfélagi.“ Um fyrirkomulag slíkrar sameiningar er síðan fjallað í 107. gr. laganna.

Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands voru íbúar í Skorradalshreppi færri en 50 þann 1. desember 1995 og 1. desember 1996. Þær íbúatölur gilda fyrir tvö ár. Verði niðurstaða Hagstofu Íslands sú að íbúar í sveitarfélaginu hafi verið færri en 50 þann 1. desember 1997, hefur íbúafjöldi fyrir eitt ár enn bæst við. Þar með telur ráðuneytið að skilyrði 2. mgr. 5. gr. sveitarstjórnarlaga hafi verið uppfyllt, þ.e. að íbúafjöldi sveitarfélagsins hafi verið lægri en 50 í þrjú ár samfleytt.

 

F. h. r.

 

Húnbogi Þorsteinsson (sign.)

Sesselja Árnadóttir (sign.)



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum