Hoppa yfir valmynd
21. maí 2002 Dómsmálaráðuneytið

Leiðbeiningar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu sjúkra o.fl.

Leiðbeiningar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu sjúkra o.fl.

I. Um atkvæðagreiðslu á stofnunum.

1. gr.
Kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra og stofnun fyrir fatlaða, er heimilt að greiða atkvæði samkvæmt nánari reglum í leiðbeiningum þessum.
Með sama hætti fer um fangelsi og vistmenn þar.

2. gr.
Rétt til að greiða atkvæði utan kjörfundar á stofnunum þessum hafa eingöngu þeir sem dveljast þar og eru þar til meðferðar eða eru vistmenn þar. Aðrir, svo sem starfslið stofnananna, hafa hins vegar ekki rétt til að greiða þar atkvæði.

3. gr.
Kjörstjóra ber að kanna í samráði við stjórn hlutaðeigandi stofnunar og að fengnum upplýsingum um þá sem eru þar til meðferðar eða eru þar vistmenn, hvort ástæða sé til að láta atkvæðagreiðslu fara þar fram og þá hvenær.
Ákvörðun um þetta efni skal tekin eigi síðar en sjö dögum fyrir kjördag og skal þá birta auglýsingu innan hlutaðeigandi stofnunar um það hvar atkvæðagreiðslan fer fram og á hvaða tíma. Jafnframt skal tilkynna umboðsmönnnum framboðslista um atkvæðagreiðsluna fyrirfram.
Atkvæðagreiðslan skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, að höfðu samráði við stjórn stofnunar. Að jafnaði er nægilegt að atkvæðagreiðsla fari fram einn dag í hverri stofnun, í nokkrar klukkustundir, eftir fjölda þeirra sem rétt eiga til að greiða atkvæði utan kjörfundar á stofnuninni. Atkvæðagreiðsla á sjúkrahúsi skal fara fram sem næst kjördegi.

4. gr.
Nauðsynlegt er að hlutaðeigandi stofnun láti í té hentuga aðstöðu, svo og eftir atvikum aðstoðarfólk, þannig að atkvæðagreiðsla geti gengið sem greiðast fyrir sig og með fyrirskipuðum hætti. Rétt er að árétta að kjósanda ber að koma á fund kjörstjóra þar sem atkvæðagreiðslan fer fram, og því aðeins má atkvæðagreiðsla fara fram á sjúkrastofu eða í herbergjum vistmanna, að verulegir annmarkar séu á að flytja kjósanda á fund kjörstjóra.

II. Um atkvæðagreiðslu í heimahúsum.

5. gr.
Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi, nema hann eigi þess kost að greiða atkvæði á stofnun samkvæmt 1. gr.

6. gr.
Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg á þar til gerðu umsóknareyðublaði (hér á PDF-sniði) (hér með word-sniði) , sem prentað er sem fylgiskjal með leiðbeiningum þessum, sem kjörstjóri lætur í té. Umsóknin skal studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans. Skal umsóknin hafa borist kjörstjóra eigi síðar en kl. 16 fjórum dögum fyrir kjördag.

7. gr.
Kjörstjóri getur í sinn stað tilnefnt sem utankjörfundarstjóra tvo trúnaðarmenn til að annast framkvæmd atkvæðagreiðslunnar hjá kjósanda. Um þá atkvæðagreiðslu fer að öðri leyti eins og um kosningu hjá kjörstjóra.

III. Almenn ákvæði.

8. gr.
Atkvæðagreiðsla skv. 1.- 7. gr. má ekki fara fram fyrr en þremur vikum fyrir kjördag.

9. gr.
Um kosningaathöfnina sjálfa, m.a. um heimild til að veita kjósanda aðstoð, gilda að öllu leyti sömu reglur og um utankjörfundaratkvæðagreiðslu almennt, sbr. XII. kafla laga um kosningar til Alþingis, einkum 62.- 63. gr. Aðstoð má þannig því aðeins veita að kjósandi sé ekki fær um að kjósa á fyrirskipaðan hátt sakir sjónleysis eða vegna þess að honum er höndin ónothæf. Óheimilt er að bjóða þeim aðstoð er þannig þarfnast hjálpar.

10. gr.
Leiðbeiningar þessar sem settar eru samkvæmt 5. mgr. 58. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24 16. maí 2000, öðlast þegar gildi.
Jafnframt falla úr gildi leiðbeiningar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu sjúkra o.fl., nr. 120 20. mars 1991.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 2. maí 2002.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum