Hjúkrunarfræðingur óskast á næturvaktir á bráðaöldrunarlækningadeild B-4 í Fossvogi
Hjúkrunarfræðingur óskast á næturvaktir á bráðaöldrunarlækningadeild B-4 í Fossvogi
Hjúkrun aldraðra. Vilt þú vaka yfir öldruðum?
Auglýst er eftir tveimur hjúkrunarfræðingum á næturvaktir á bráðaöldrunarlækningadeild B-4 Fossvogi. Starfshlutfall er 50 til 60% eða eftir samkomulagi. Í boði er góð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum.
Bráðaöldrunarlækningadeild er 22 rúma og er meginstarf deildarinnar greining og meðferð bráðra sjúkdóma hjá öldruðum. Markvisst er unnið að umbótum í starfi og umhverfi og höfum við lagt áherslu á byltuvarnir, þrýstingssáravarnir, sýkingavarnir og að fyrirbyggja lyfjaatvik. Á deildinni starfa rúmlega 50 manns í þverfaglegu teymi. Við leggjum áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart samstarfsfólki og vinnustaðnum okkar.
Við tökum vel á móti nýjum vinnufélögum. Vinsamlegast hafið samband við Ragnheiði Guðmundsdóttur deildarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðinga
» Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda þeirra
» Þátttaka í teymisvinnu
» Virk þátttaka í þróun og faglegri uppbyggingu deildar
Hæfnikröfur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
» Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
» Áhugi á að starfa í fjölbreyttu umhverfi með fjölþjóðlegum hópi samstarfsmanna
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á Landspítala.
Upphafsdagur starfs er 15. ágúst 2020 eða samkvæmt samkomulagi. Um er að ræða tvær stöður næturvaktahjúkrunarfræðinga. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Starfshlutfall er 50 - 60%
Umsóknarfrestur er til og með 05.08.2020
Nánari upplýsingar veitir
Ragnheiður Guðmundsdóttir - [email protected] - 543 9400
Bára Benediktsdóttir - [email protected] - 543 1787
Landspítali
Bráðaöldrunarlækningadeild
Fossvogi
108 Reykjavík
Smellið hér til að sækja um starf