Hoppa yfir valmynd
16. júní 2020

Launað starfsnám til sérfræðiviðurkenningar í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði - Umsóknarfrestur framlengdur til 22. september

Launað starfsnám til sérfræðiviðurkenningar í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði


Landspítali auglýsir eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum í launað starfsnám til sérfræðiviðurkenningar.

Tilgangur starfsnámsins er að efla og bæta við klíníska færni og þekkingu verðandi sérfræðinga í hjúkrun og ljósmóðurfræðum á viðkomandi sérsviði. Þau fái frekari þjálfun í faglegum vinnubrögðum og afli sér reynslu í hlutverki sérfræðings á viðkomandi sérsviði undir handleiðslu sérfræðings. Starfsnámið er einstaklingsmiðað og stendur yfir í 9-18 mánuði. Starfsnámið hefst í október 2020. 


Helstu verkefni og ábyrgð
» Leggur fram námsáætlun og gerir reglulega grein fyrir framvindu starfsnámsins 
» Veitir sérhæfða meðferð, umönnun sjúklingahóps eða vinnur að þróun hjúkrunarstarfs í samræmi við klínískar áherslu starfsnámsins 
»Tekur þátt í námskeiði um aðferðafræði við innleiðingu gæðaverkefna og beitir þeirri aðferð við innleiðingu gæðaverkefna 
» Stuðlar að þverfaglegri samvinnu og hefur frumkvæði að nýjungum í meðferð eftir því sem við á 
» Veitir ráðgjöf og fræðslu til sjúklinga, aðstandenda eða starfsmanna um meðferð á sínu sérsviði
» Tekur þátt í reglubundnum umræðutímum og ígrundunar viðfangsefni sín


Hæfnikröfur
» Meistarapróf sem uppfyllir skilyrði reglugerða um hjúkrunarfræðinga nr. 512/2013 með síðari breytingum og/eða um ljósmæður nr. 1089/2012. Báðar viðkomandi reglugerðir fjalla um menntun, réttindi og skyldur viðkomandi stétta til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi 
» Áhugi og metnaður til að þróa sérfræðiþekkingu á tilteknu sviði hjúkrunar- eða ljósmóðurfræði 
» Íslenskt hjúkrunar-/ ljósmóðurleyfi 


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef umsækjandi er ekki þegar í starfi á Landspítala. 
Umsókn fylgi einnig kynningarbréf þar sem tilgreind eru persónuleg markmið með starfsnáminu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.


Starfshlutfall er 100%
Starfið auglýst 23.06.2020. Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 22.09.2020.


Nánari upplýsingar veitir
Auðna Ágústsdóttir - [email protected] - 543 1419



Landspítali
Skrifstofa framkvæmdastjóra hjúkrunar
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík


Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum