Hoppa yfir valmynd
1. nóvember 2018

Framhaldsskólakennari í list- og hönnunargreinum

 

Framhaldsskólakennari í list- og hönnunargreinum - Menntaskólinn á Ísafirði 

Menntaskólann á Ísafirði óskar eftir að ráða kennara í heila stöðu í list- og hönnunargreinum. Sóst er eftir framhaldsskólakennara sem hefur til að bera góða samskipta- og skipulagshæfni, þjónustulund, frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum, áhuga á að vinna með ungu fólki og vilja til þátttöku í þróunarstarfi í kennsluháttum og námsmati sem og þverfaglegu samstarfi. 

Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2019. Laun eru samkvæmt kjarasamningum ríkissjóðs og KÍ skv. nánari útfærslu í stofnanasamningi MÍ. Í anda jafnréttisstefnu MÍ er hvatt til þess að konur jafnt sem karlar sæki um stöður við skólann. 

Umsóknarfrestur er til 26. nóvember 2018.  Ekki þarf að sækja um á sérstökum umsóknareyðublöðum en í umsókn þarf að greina frá menntun (staðfest með ljósriti af prófskírteinum), fyrri störfum og öðru því sem umsækjandi telur að máli skipti. Tekið skal fram að viðkomandi þarf að hafa framhaldsskólakennararéttindi (sbr. lög nr. 87/2008) og einnig að skv. 4. mgr. 8. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Umsóknir skulu berast til skólameistara í  netfangið [email protected] fyrir þann tíma.

Nánari upplýsingar veitir Jón Reynir Sigurvinsson skólameistari í netfanginu [email protected] og í síma 896-4636 eða í síma 450-4400. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef staða losnar á ný.

Skólameistari

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum