Hoppa yfir valmynd
9. ágúst 2019

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Garðabæ

Heilsugæslan Garðabæ auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi til starfa við skólahjúkrun og hjúkrunarmóttöku. Um 70-100% ótímabundið starf er að ræða og þarf viðkomandi að geta hafið störf í október næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi. 

Heilsugæslunni er ætlað að veita íbúum almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Starfsemi heilsugæslunnar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu. 

Á Heilsugæslunni Garðabæ starfa læknar, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, sálfræðingur, hreyfistjóri og ritarar. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is). 

Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu er mjög fjölbreytt. Meginverkefni í þessu starfi eru skólaheilsugæsla og hjúkrunarmóttaka.

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni. Skólahjúkrunarfræðingar á stöðinni starfa í samvinnu við fjölskylduteymi Garðabæjar, þverfaglegs teymis sem samhæfir aðgerðir fyrir fjölskyldur barna með ýmiskonar vanda. 

Hjúkrunarmóttakan sinnir fólki á öllum aldri og skiptist í opna móttöku, bókaða móttöku og símaráðgjöf. Í opinni móttöku er tekið á móti bráðaerindum, í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum sem eru ekki bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð. Einnig er boðið upp á lífsstíls- og sykursýkisráðgjöf. Mikil þróun á sér stað í hjúkrunarmóttöku á Heilsugæslunni í Garðabæ, þar sem markmiðið er að veita sem besta þjónustu.

Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun æskileg 
- Faglegur metnaður og áhugi á að vinna með börnum
- Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur 
- Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
- Sjálfstæði í starfi
- Góð íslenskukunnátta 

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. 

Starfshlutfall er 70 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.08.2019

Nánari upplýsingar veitir
Margrét Björnsdóttir - [email protected] - 513-5500
Ásmundur Jónasson - [email protected] - 513-5500

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Garðabæ hjúkrun
Garðatorgi 7
210 Garðabær

Sækja um starf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum