Hoppa yfir valmynd
25. október 2018

Eftirlitsmaður í lyfjaöryggisdeild

Eftirlitsmaður í lyfjaöryggisdeild

Lyfjastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsmann í lyfjaöryggisdeild á eftirlitssvið 

Lyfjastofnun auglýsir laust starf eftirlitsmanns í lyfjaöryggisdeild á eftirlitssviði. Leitað er að öflugum einstaklingi sem er reiðubúinn að vinna krefjandi og fjölbreytt starf sem felur m.a. í sér ferðir innanlands sem og erlendis á vegum stofnunarinnar. Starfshlutfall er 100%. 

Helstu verkefni:
Eftirlit með lyfjaframleiðendum og lyfjaheildsölum (GMP/GDP)
Eftirlit með markaðsleyfishöfum, þ.m.t. lyfjagátarkerfum 
Þátttaka í erlendu samstarfi Lyfjastofnunar
Meðhöndlun váboða
Meðhöndlun og eftirfylgni innkallana, kvartana og tilkynninga

Menntunar- og hæfniskröfur:
Meistaragráða í lyfjafræði, lífefnafræði, líffræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
Þekking og reynsla á sviði lyfjaframleiðslu og/eða lyfjadreifingar
Reynsla af eftirliti og/eða gæðamálum
Góð íslensku- og enskukunnátta
Kunnátta í einu Norðurlandamáli er æskileg
Mjög góð tölvufærni
Mjög góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
Frumkvæði og faglegur metnaður
Góð greiningar og skipulagshæfni
Hæfni í að miðla upplýsingum með skipulögðum og skýrum hætti
Jákvæðni og sveigjanleiki

Upplýsingar um starfið veita Valgerður G. Gunnarsdóttir, sviðsstjóri eftirlitssviðs, [email protected], og Sigurlaug K. Jóhannsdóttir, mannauðsstjóri, [email protected], eða í síma: 520-2100.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsóknir um starfið óskast sendar á netfangið [email protected], merkt í efnislínu: „Eftirlitsmaður“. Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Lyfjastofnun hvetur bæði karla og konur til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 19. nóvember 2018.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. 

Lyfjastofnun er ríkisstofnun sem heyrir undir heilbrigðisráðherra. Helstu hlutverk hennar eru að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit  með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna 63 starfsmenn. Stofnunin var í 9. sæti í könnuninni Stofnun ársins 2018 yfir stofnanir með 50 starfsmenn eða fleiri. Lyfjastofnun leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, starfsþróun og framfylgir stefnu um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta.

Sjá nánari upplýsingar um Lyfjastofnun á vef stofnunarinnar www.lyfjastofnun.is

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum