Sérfræðingar um grænt samfélag
Sérfræðingar um grænt samfélag
Umhverfisstofnun leitar að tveimur sérfræðingum til að vinna að vitundarvakningu um grænan lífsstíl og neyslu með áherslu á loftlagsmál í öflugu teymi sérfræðinga þar sem lögð er áhersla á þverfaglega teymisvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið sérfræðinganna felst í að þróa verkefni um loftslagsstefnu stofnana og sveitarfélaga, vinna að aðgerðum í stefnunni Saman gegn sóun og verkefnum tengdum umhverfismerkinu Svaninum. Störfin fela jafnframt í sér fræðslu og miðlun upplýsinga til almennings ásamt samskipti við fyrirtæki og opinbera aðila.
Hæfnikröfur
- Meistarapróf sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af miðlun efnis til almennings
- Mjög góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Að auki verða eftirfarandi þættir hafðir að leiðarljósi:
- Þekking á umhverfismálum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð auk frumkvæðis í starfi
- Þekking á fræðslumálum og miðlun upplýsinga
- Færni við greiningu og úrvinnslu gagna
- Góð samstarfshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
- Þekking á norðurlandatungumáli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Æskilegt er að sérfræðingarnir geti hafið störf sem fyrst. Starfsaðstaða þeirra getur verið í Reykjavík, Hellissandi, Patreksfirði, Ísafirði, Akureyri, Mývatni, Egilsstöðum, Hellu eða Vestmannaeyjum, allt eftir búsetu. Gagnkvæmur reynslutími er sex mánuðir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.01.2020
Nánari upplýsingar veitir
Elva Rakel Jónsdóttir - [email protected] - 5912000
Guðrún Lilja Kristinsdóttir - [email protected] - 5912000
Umhverfisstofnun
Svið loftslagsmála og græns samfélags Teymi græns samfélags
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Smelltu hér til að sækja um starfið