Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2000 Innviðaráðuneytið

Borgarfjarðarhreppur - Beiðni um breytingu á mörkum þannig að fyrrum Loðmundarfjarðarhreppur færist í Seyðisfjarðarkaupstað

Stefán Smári Magnússon                                                   14. janúar 2000                                                              FEL00000044

Hafnargötu 16 B                                                                                                                                                                           1003

710 Seyðisfjörður

 

 

 

        Vísað er til erindis yðar til félagsmálaráðuneytisins, dagsett 10. þessa mánaðar, þar sem óskað er eftir að ráðuneytið hlutist til um breytingu á mörkum Borgarfjarðarhrepps á þann veg að fyrrum Loðmundarfjarðarhreppur færist úr Borgarfjarðarhreppi yfir í Seyðisfjarðarkaupstað.

 

        Í 3. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 eru svohljóðandi ákvæði:

        Sveitarfélag hefur ákveðin staðarmörk.  Óheimilt er að breyta þeim nema með lögum.

        Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. getur ráðuneytið breytt mörkum sveitarfélaga í sambandi við sameiningu þeirra eða til staðfestingar á samkomulagi milli sveitarstjórna.

 

        Með vísan til sjálfsstjórnarréttar sveitarfélaganna, sem tryggður er í 78. gr. stjórnarskrárinnar og 1. gr. sveitarstjórnarlaga, telur félagsmálaráðuneytið að mjög veigamiklar ástæður sem varði almannahagsmuni þurfi að liggja fyrir til þess að lagt verði fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um breytingu á mörkum sveitarfélaga.  Ekki verður séð að slíkir hagsmunir séu fyrir hendi í þessu tilviki.

 

        Ákvæði 3. gr. sveitarstjórnarlaga eru ákaflega skýr að því er varðar heimildir ráðuneytisins til að staðfesta breytingar á mörkum sveitarfélaga.  Samkvæmt þeim er ljóst að ráðuneytið getur ekki breytt mörkum Borgarfjarðarhrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar nema sveitarstjórnir þeirra geri samkomulag um breytingu á mörkum sveitarfélaganna eða þau sameinist.  Á annan hátt er ekki unnt samkvæmt sveitarstjórnarlögum að breyta núverandi mörkum þessara tveggja sveitarfélaga.

 

F. h. r.

 

Húnbogi Þorsteinsson (sign.)

Sesselja Árnadóttir (sign.)

 

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum