Hoppa yfir valmynd
14. febrúar 2019

Lektor í leikskólafræði

Lektor í leikskólafræði - Háskóli Íslands - Menntavísindasvið 

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í leikskólafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Meðal viðfangsefna lektorsins verða kennsla og rannsóknir á einhverjum af eftirfarandi sviðum leikskólafræði: Hugmyndafræði og gildi í leikskólastarfi og starfendarannsóknir, kenningar um leik, samskipti, sjónarmið barna, fagmennsku og hlutverk leikskólakennara. Rannsóknir eru 40% af starfsskyldum lektorsins.

Meginhlutverk væntanlegs lektors verður: 
Kennsla á grunn- og meistarastigi í leikskólafræði.
Leiðsögn með framhaldsnemum.
Rannsóknir á einhverjum ofannefndum sviðum leikskólafræðinnar.
Að þróa kennslu í leikskólafræði innan Menntavísindasviðs.  
Að þróa rannsóknir í leikskólafræði innan Menntavísindasviðs og byggja upp rannsóknarsamstarf á alþjóðlegum vettvangi.
Að efla samstarf við starfsvettvang leikskólakennara.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi í leikskólafræði. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af erlendu rannsóknarsamstarfi og hafi birt rannsóknarniðurstöður með erlendum samstarfsaðilum. Einnig er mikilvægt að umsækjandi hafi starfsreynslu í leikskólum.

Rík áhersla er lögð á að sá sem starfið hlýtur hafi góða færni í kennslu og rannsóknum, og hafi skýra framtíðarsýn um hlutverk sitt í kennslu og rannsóknum á sviðinu. Þá er krafist góðrar samstarfshæfni og lipurðar í mannlegum samskiptum. Horft verður til þess að umsækjendur falli sem best að aðstæðum og þörfum sviðsins í heild.

Ráðið verður í starfið til tveggja ára með möguleika á framlengingu. Að loknum fimm árum í starfi, ef til framlengingar kemur, er möguleiki á ótímabundinni ráðningu, sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt frá 1. júlí 2019 eða samkvæmt nánara samkomulagi, þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna munu fjalla.  

Umsóknir: 
Umsóknarfrestur er til 18. mars 2019.

Sótt er um starfið á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf. 

Umsækjendur skulu láta fylgja með umsókn sinni, ferilskrá, vottorð um námsferil sinn, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og greinargerð um áform og framtíðarsýn ef til ráðningar kemur. Umsækjandi skal tilgreina veigamestu ritverk sín, allt að átta talsins, með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal fylgja greinargerð höfunda fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. 

Umsókn og umsóknargögnum, sem ekki er skilað rafrænt, skal skila í tvíriti til Vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 6, 101 Reykjavík. 

Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. 

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jónína Vala Kristinsdóttir, forseti Deildar Kennslu- og menntunarfræði, í síma 525 5511, netfang: [email protected] og Lára Rún Sigurvinsdóttir, mannauðsstjóri Menntavísindasviðs, í síma 525 5905, netfang: [email protected] 

Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands er stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands. Háskólinn veitir nemendum víðtæka menntun á öllum helstu fræðasviðum og þjónar stofnunum, fyrirtækjum og stjórnvöldum í þágu almannaheilla. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. 

Á Menntavísindasviði fer fram rannsóknartengt starfsnám fyrir kennara á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga, og þroskaþjálfa. Lögð er áhersla á rannsóknir og þróunarstarf sem unnið er í samstarfi við starfsvettvang. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum