Hoppa yfir valmynd
16. maí 2019

Fjármálastjóri

Fjármálastjóri við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Við leitum að metnaðarfullum, jákvæðum og framsýnum leiðtoga til að leiða fjármálasvið Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.

Fjármálastjóri heyrir undir forstjóra og er hluti af framkvæmdastjórn þar sem lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð, umbætur í rekstri og ánægju starfsmanna. Fjármálastjóri ber ábyrgð á verkefnum fjármálasviðs sem felast meðal annars í fjárhagslegum rekstri, bókhaldi, launavinnslu, áætlanagerð og eftirfylgni með áætlunum auk umbótaverkefna á sviði fjármála. Þá mun hluti annarrar stoðþjónustu einnig heyra undir fjármálastjóra. Við leitum því að einstaklingi sem hefur góða leiðtoga- og samskiptafærni þar sem starfið er krefjandi með tækifærum til að þróa og innleiða nýja ferla og bætt vinnulag. 

Helstu viðfangsefni og ábyrgð
Áætlanagerð, umsjón með fjármálum og ábyrgð á daglegum rekstri 
Ábyrgð á launavinnslu, bókhaldi og gerð ársreiknings
Innra eftirlit og rýni á rekstri stofnunarinnar í heild og einstakra eininga
Dagleg stjórnun og mannaforráð með starfsmönnum á fjármálasviði
Samningagerð og ýmis samskipti við viðskiptaaðila og stofnanir
Virk þátttaka í stefnumótun, m.a. með setu í framkvæmdastjórn
Getur gengið í störf annarra starfsmanna sviðsins

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði fjármála, viðskipta eða hagfræði; framhaldsmenntun æskileg
Reynsla af fjármálastjórn, bókhaldi, launavinnslu og/eða mannaforráðum 
Reynsla af úrvinnslu og framsetningu gagna
Áhugi á umbótaverkefnum og teymisvinnu 
Góðir leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Áreiðanleiki, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi 
Áhugi á þróun og uppbyggingu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

Frekari upplýsingar 
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að störf hefjist í ágúst 2019. Hægt er að hafa starfstöð á Ísafirði eða Patreksfirði. 
Umsóknarfrestur er til 7. júní 2019. Umsóknum skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi. Umsóknum er skilað á netfangið [email protected]  

Nánari upplýsingar um starfið veitir Gylfi Ólafsson forstjóri í síma 450-4500 og á netfanginu [email protected].
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða veitir almenna heilbrigðisþjónustu á þremur sviðum; hjúkrunarsviði, heilsugæslusviði og sjúkrasviði, með sjúkrahús á Ísafirði og Patreksfirði. Hjá stofnuninni starfa ríflega 250 manns, og veltir hún um 2,4 milljörðum króna í ár. Innan heilbrigðisumdæmisins eru sveitarfélögin Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð.

Það er kraftur í samfélögunum fyrir vestan. Einstök náttúra einkennir svæðið, íþróttalíf er fjölbreytt og gróskumikið menningarstarf fer fram allt árið um kring, sérstaklega á sviði tónlistar. Fjölbreytt atvinnutækifæri eru á svæðinu, og börnin njóta sín í skólunum. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum