Hoppa yfir valmynd
13. júlí 2020

Hjúkrunarfræðingur á Hvammstanga

Hjúkrunarfræðingur á Hvammstanga

Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á öldrunardeildina á Hvammstanga.

Dag og kvöldvaktir, helgarvinna ásamt bakvöktum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1.September 2020


Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á að skipuleggja og framkvæma hjúkrun skjólstæðinga á faglegum forsendum, í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu og stefnu HVE. Vinnur undir stjórn deildarstjóra og ber faglega, siðferðislega og lagalega ábyrgð á störfum sínum skv. Siðareglum hjúkrunarfræðinga. Ber ábyrgð á að framfylgja reglum um hreinlæti og smitgát á stofnuninni. Sýnir faglegan metnað og færni og leitast við að viðhalda þekkingu sinni og stuðlar að framþróun í hjúkrun. Þekkir og vinnur eftir Lögum um heilbrigðisstarfsmenn 34/2012.

Hæfnikröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði.
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og góða samskiptafærni.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Reynsla af hjúkrun er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á www.hve.is eða á starfatorg.is. 
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá, staðfest afrit af íslensku hjúkrunarleyfi og afrit af námskeiðum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 80 - 80%
Umsóknarfrestur er til og með 27.07.2020

Nánari upplýsingar veitir
Auður Einarsdóttir - [email protected] - 432-1310
Þura Björk Hreinsdóttir - [email protected] - 432-1000


Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Hvst Sjúkrahús Öldrunardeild
Spítalastíg 1
530 Hvammstangi



 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum