Hoppa yfir valmynd
11. september 2020

Embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu laust til umsóknar

Embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu laust til umsóknar


Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. 


Sýslumenn fara með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, hver í sínu umdæmi, eftir því sem lög og reglugerðir eða önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um. Auk hefðbundinna verkefna sýslumannsembætta þá annast Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu veitingu leyfa til ættleiðinga, afgreiðslu nauðungarvistana, löggildingu fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala, sáttameðferð og vinnu sérfræðinga í málefnum barna, 
skráningu leyfa til heimagistingar og álagningu stjórnvaldssekta vegna gististarfsemi sem er rekin án tilskilinna rekstrarleyfa. Sýslumenn bera faglega, fjárhagslega og stjórnunarlega ábyrgð á rekstri embætta sinna í samræmi við lög og önnur stjórnvaldsfyrirmæli. Embættið á höfuðborgarsvæðinu sker sig frá öðrum sýslumannsembættum landsins vegna stærðar og umfangs verkefnanna. Gera má ráð fyrir að næstu árum verði unnið að nokkuð umfangsmiklum breytingum á mörgum verkefnum sýslumanna, vinnulagi við þau og verkaskiptingu á milli embætta. Sýslumenn þurfa að eiga náið samstarf sín á milli og vinna með ráðuneytinu að þessum breytingum, ásamt ýmsum umbótaverkefnum vegna örra tæknibreytinga hjá hinu opinbera, í samræmi við stefnu ríkisins. 


Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 3. gr. laga nr. 50/2014, um framkvæmdavald og stjórnsýslu ríkisins í héraði.


Aðrar hæfniskröfur eru:
Reynsla af stjórnun með mannaforráð
Góð þekking og yfirsýn á verkefnum sýslumanna æskileg
Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar æskileg
Rekstrarþekking og/eða reynsla er æskileg
Mjög góð forystu-, samvinnu- og samskiptahæfni
Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni 
Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg

Dómsmálaráðherra skipar í embættið til 5 ára í senn, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 1. janúar 2021. 


Um laun og starfskjör sýslumanns fer samkvæmt 39. gr. a. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.   
Nánari upplýsingar veitir Berglind Bára Sigurjónsdóttir skrifstofustjóri í síma 545 9000.


Umsóknir skulu berast í gegnum [email protected]


Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Umsóknarfrestur er til 1. október nk


Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá, starfsheiti og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfylli hæfniskröfur fyrir starfið. Umsækjandi skal í kynningarbréfi gera skýra grein fyrir hæfni sinni í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í 2. mgr. 3. gr. laga nr. 50/2014  og auglýsingunni auk  annarra upplýsinga sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf sýslumanns.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum