Hoppa yfir valmynd
9. maí 2019

Kennarar


Lausar stöður framhaldsskólakennara
í Fjölbrautaskóli Suðurlands

Fjölbrautaskóli Suðurlands auglýsir eftir kennurum í eftirfarandi greinum:

Enska – 100% staða.
Félagsfræði – a.m.k. 50% staða.
Hönnun – 50% staða (fatahönnun, textílgreinar) 
Spænska – 100% staða í eina önn.

Nemendur koma að mestu af upptökusvæði skólans sem er allt Suðurland. Áætlaður nemendafjöldi í skólanum er ríflega 800 nemendur.

Umsóknir ásamt greinargerð um menntun og fyrri störf berist á tölvupóstfangið [email protected] . Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum. Mikilvægt er að tilgreina meðmælendur í umsókninni. Umsækjendur þurfa að senda inn sakavottorð. 

Umsóknarfrestur er til og með 27. maí 2019.

Æskilegt er að umsækjandi sé með kennsluréttindi á framhaldsskólastigi.

Leitað er eftir skipulögðum einstaklingum með brennandi áhuga á skólastarfi og löngun til að  vinna með ungu fólki. Umsækjandi þarf að hafa frumkvæði í starfi, vera skipulagður, vera fær í samskiptum og samvinnu og hafa góða þekkingu á ólíkum kennsluaðferðum. Kennslureynsla er æskileg.

Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf. Góð tölvukunnátta er mikilvæg. 

Laun kennara eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigursveinn Sigurðsson, skólameistari, [email protected].  Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.fsu.is 

Skólameistari 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum