Hoppa yfir valmynd
24. janúar 2020

Hjúkrunarfræðingar - Siglufjörður - Sumarafleysing

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Siglufirði, hjúkrunarfræðingar sumarafleysing

Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Siglufirði (HSN) óskar eftir hjúkrunarfræðingum í sumarafleysingar.
Ráðningartími er frá 1. júní til 25. ágúst 2020 eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.

Hæfnikröfur
- Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvæðni og sveigjanleiki.
- Starfsreynsla í hjúkrun æskileg

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði. 
Með umsókn skal fylgja afrit af prófskirteini, íslenskt hjúkrunarleyfi og náms- og starfsferilsskrá.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing.

Starfshlutfall er 60 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Anna Sigurbjörg Gilsdóttir - [email protected] - 460 2172
Sigurður Jóhannesson - [email protected] - 460 2174


Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Fjallabyggð Hjúkrunarsvið
Hvanneyrarbraut 37
580 Siglufjörður


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum