Hoppa yfir valmynd
21. september 2018 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Framlög til háskólastigsins í fjárlögum 2019

Fjárheimildir háskólastigsins 2015-2019, á verðlagi 2019 í þúsundum milljóna.  - mynd
Fjárfesting á háskólastigi heldur áfram að aukast en heildargjöld til þess munu samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 2019 nema tæpum 47 milljörðum kr. á næsta ári. Það er að meðtöldum launa- og verðlagsbreytingum hækkun um 2,2 milljarða eða um 5% milli ára. Þetta eru háar fjárhæðir en sýnt er að hver króna sem fer í fjárfestingu á háskólastiginu skilar sér áttfalt til baka til samfélagsins.

Sem dæmi um hækkanir innan málefnasviðs háskólastigsins eru fjárveitingar til reksturs háskóla og rannsóknastofnana sem hækka um 245 milljónir kr. milli ára og framlög til fræða- og þekkingarsetra sem hækka um 50 milljónir kr. Í fjárlagafrumvarpinu er einnig fylgt eftir áherslum um nýliðun kennara með sérstöku 50 milljón kr. framlagi til endurskoðunar á kennaranámi.

Stuðningur við námsmenn eykst um 3,5% milli ára, heildarfjárheimild þess málaflokks fyrir árið 2019 er áætluð 8,2 milljarðar kr. og hækkar um tæpar 282 milljónir kr. frá fjárlögum þessa árs vegna aukins framlags til Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Vinnu við endurskoðun á LÍN miðar vel áfram og er stefnt að því að frumvarp þess efnis fari í opið samráð á fyrri hluta ársins 2019.

Markmiðið með auknum framlögum til kennslu og rannsókna er fyrst og fremst að auka gæði náms og námsumhverfis. Sé miðað við nýjasta meðaltal OECD frá 2015 um framlag á hvern háskólanemenda stefnir í að árið 2020 hafi Ísland náð því markmiði eins og að stefnt er að í sáttmála ríkisstjórnarinnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum