Hoppa yfir valmynd
21. desember 2018

Embætti prests í Patreksfjarðarprestakalli

Auglýsing um embætti prests í Patreksfjarðarprestakalli 

Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar embætti prests í Patreksfjarðarprestakalli, Vestfjarðaprófastsdæmi. Um 50% starfshlutfall er að ræða. Skipað er í embættið frá 1. apríl 2019 til fimm ára. 

Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um val og veitingu prestsembætta nr. 144/2016 og um presta nr. 1011/2011, svo og leiðbeinandi reglna biskups Íslands frá 2017 fyrir umsækjendur um laus prestsembætti. Starfsreglur þessar og leiðbeinandi reglur eru á vef kirkjunnar www.kirkjan.is. Með því að sækja um embættið staðfesta umsækjendur að þeir hafi átt þess kost að kynna sér þessar reglur. 
Í Patreksfjarðarprestakalli, búa samtals um 1.270 manns. Þar eru átta sóknir, þ.e. Bíldudals-, Breiðuvíkur-, Brjánslækjar-, Haga-, Patreksfjarðar-, Sauðlauksdals-, Saurbæjar- og Stóra-Laugardalssóknir. 

Vísað er til þarfagreiningar sókna prestakallsins varðandi frekari upplýsingar um starfið og starfsumhverfið. Auglýsing þessi og þarfagreining er birt á vef kirkjunnar, www.kirkjan.is undir laus störf. 

Allar gildar umsóknir fara til þriggja manna matsnefndar sem metur hæfni umsækjenda, sbr. 5. og 6. gr. framangreindra starfsreglna um val og veitingu prestsembætta. Matsnefnd velur að jafnaði fjóra hæfustu umsækjendurna en þó aldrei fleiri en fimm og skilar skýrslu þar að lútandi til biskups. 
Kjörnefnd prestakalls kýs prest úr hópi framangreindra umsækjenda, að loknu valferli kjörnefndar, sbr. fyrrgreindar starfsreglur um val og veitingu prestsembætta.  

Umsækjendur geri skriflega grein fyrir starfsferli, samskiptahæfileikum og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram. Umsókn skal fylgja staðfest afrit af prófskírteini ásamt einkunnum svo og upplýsingar um starfsþjálfun eftir því sem við á. Einnig skal fylgja staðfesting á annarri menntun og þjálfun eftir atvikum. 

Umsækjendum ber að skila greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn og væntingar er varða embættið. 

Umsækjendum ber að fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda, sbr. 3. gr. starfsreglnanna. Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni. Eyðublaðið má finna á vef kirkjunnar www.kirkjan.is.  

Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 15. gr. framangreindra starfsreglna um val og veitingu prestsembætta. Skrifleg ósk um kosningu skal hafa borist biskupi eigi síðar en hálfum mánuði eftir að prestakallið var auglýst laust til umsóknar. 

Um embættið gilda lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar. Er einkum vísað til starfsreglna um presta. 

Um laun og önnur kjör fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs. 

Nánari upplýsingar um embættið, starfskjör og helstu lög og reglur sem um starfið gilda eru veittar á Biskupsstofu, s. 5284000, hjá skipuðum sóknarpresti Patreksfjarðarprestakalls, sr. Kristjáni Arasyni, s. 8466569 og prófasti Vestfjarðaprófastsdæmis, sr. Magnúsi Erlingssyni, s. 4563171. 

Umsóknarfrestur um embættið er til miðnættis þriðjudaginn 22. janúar 2019. 

Sækja ber um embættið rafrænt á vef kirkjunnar og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram. 

Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. 

Vakin er athygli á því að nöfn umsækjenda um embættið verða birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum