Hoppa yfir valmynd
13. maí 2019

Framhaldsskólakennari - tréiðngreinar

 

Framhaldsskólakennari – Fjölbrautaskóli Vesturlands

Við Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi er laus til umsóknar 100% staða framhaldsskólakennara í tréiðngreinum. Um er að ræða afleysingu til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Umsækjandi þarf að hafa sveinspróf í húsasmíði. Æskilegt er að umsækjandi sé iðnmeistari í greininni eða hafi háskólapróf í byggingatæknigreinum. 

Ráðning og kjör:
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans. Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en í umsókn þarf að greina frá menntun, fyrri störfum og öðru því sem umsækjandi telur að máli skipti. 

Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti til Ágústu Elínar Ingþórsdóttur, skólameistara, [email protected], til 3. júní 2019. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 

Jafnt konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið.

Á heimasíðu skólans, www.fva.is, eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans.


Skólameistari


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum