Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2019

Lektor í samfélagsgreinum - Menntavísindasvið

Lektor í samfélagsgreinum. Háskóli Íslands, Menntavísindasvið - Reykjavík

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í samfélagsgreinum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Starfið er á sviði samfélagsgreina, með áherslu á landafræði, sagnfræði eða skyldar greinar. Lektornum er ætlað að taka þátt í uppbyggingu og eflingu samfélagsgreinamenntunar í kennaranámi ásamt umsjón með lokaverkefnum á sviðinu. Í starfinu verður lögð rík áhersla á samvinnu við aðrar deildir Háskóla Íslands um kennslu og rannsóknir.

Menntunar- og hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi í einhverri af þeim greinum sem falla undir samfélagsgreinar eða í menntunarfræði þeirra. Kostur er að inntak menntunar á háskólastigi nái til fleiri en einnar greinar. Þá er æskilegt að umsækjandi hafi reynslu af skólastarfi í grunn- eða framhaldsskóla í menntun sinni eða starfi. Leitað er að einstaklingi sem er lipur í mannlegum samskiptum, hefur frumkvæði og skipulagshæfileika og getur unnið sjálfstætt.     
Ráðið verður í starfið til tveggja ára með möguleika á framlengingu. Að loknum fimm árum í starfi, ef til framlengingar kemur, er möguleiki á ótímabundinni ráðningu, sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt frá 1. júlí 2019 eða samkvæmt nánara samkomulagi, þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna munu fjalla.  

Umsóknir 
Umsóknarfrestur er til 18. febrúar 2019.

Sótt er um starfið á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf.

Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og greinargerð um áform og framtíðarsýn ef til ráðningar kemur. Umsækjandi skal tilgreina veigamestu ritverk sín, allt að átta talsins, með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal fylgja greinargerð höfunda fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. 

Umsókn og umsóknargögnum, sem ekki er skilað rafrænt, skal skila í tvíriti til Vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 6, 101 Reykjavík. 

Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. 

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólöf Garðarsdóttir, brautarformaður á braut samfélagsgreina í Deild faggreinakennslu, í síma 525 5350 eða 868 9772, netfang: [email protected]

Við ráðningu í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun Háskóla Íslands.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands er stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands. Háskólinn veitir nemendum víðtæka menntun á öllum helstu fræðasviðum og þjónar stofnunum, fyrirtækjum og stjórnvöldum í þágu almannaheilla. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. 

Á Menntavísindasviði fer fram rannsóknartengt starfsnám fyrir kennara á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga, og þroskaþjálfa. Lögð er áhersla á rannsóknir og þróunarstarf sem unnið er í samstarfi við starfsvettvang. 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum