Sérkennari á starfsbraut
Sérkennari á starfsbraut
Fjölbrautaskóli Vesturlands óskar eftir að ráða sérkennara á starfsbraut (sérnámsbraut). Um 100% starf er að ræða og eins árs afleysingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er að vel menntuðum og áhugasömum kennara sem sýnir frumkvæði í starfi, góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Hæfnikröfur
Umsækjandi þarf að hafa próf í sérkennslufræðum ásamt réttindum á framhaldsskólastigi.
Góð samskipta- og skipulagshæfni er mikilvæg ásamt áhuga á að starfa í öflugu starfsteymi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans. Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en í umsókn þarf að greina frá menntun, fyrri störfum og öðru því sem umsækjandi telur að máli skipti.
Á heimasíðu skólans, www.fva.is, er að finna ýmsar upplýsingar um skólann og starfsemi hans.
Upplýsingar um starfið veitir Ágústa Elín Ingþórsdóttir, skólameistari, s. 433 2500.
Umsóknir ásamt fylgigögnum berist í tölvupósti til skólameistara, [email protected]. Umsóknarfrestur er til og með 11. júní 2019.
Skólameistari