Hoppa yfir valmynd
6. maí 2019

Framhaldskólakennarar


Framhaldskólakennarar – Fjölbrautaskóli Snæfellinga

Fjölbrautaskóla Snæfellinga Grundarfirði óskar eftir að ráða framhaldskólakennara næstkomandi skólaár 2019-2020. Meðal kennslugreina eru líffræði, efnafræði og eðlisfræði,.  Um er að ræða hlutastörf í hverri grein.

Við Fjölbrautaskóla Snæfellinga er laus til umsóknar tímabundin staða framhaldsskólakennara í íþróttum og næringarfræði á haustönn 2019. Um hálfa stöðu er að ræða.

Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru  nýting upplýsingatækni í skólastarfi, fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarmat. 
Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í fagi og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Leitað er að kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi og uppbyggingu náms í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008). Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans.

Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2019.

Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum. Umsókn með ferilskrá, prófskírteinum, sakavottorði og með upplýsingum um umsagnaraðila skal senda rafrænt til skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga á netfangið [email protected]. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði.

Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga.

Sakavottorð fylgi umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 27. maí 2019.

Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Sakavottorð þarf að liggja fyrir við ráðningu. Nánari upplýsingar veitir Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari [email protected] 

Einnig er hægt að hafa samband í síma 4308400. Á vef skólans www.fsn.is má auk þess finna ýmsar upplýsingar um skólann.

Skólameistari

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum