Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2018

Rannsóknarlögreglumaður á Keflavíkurflugvelli

Rannsóknarlögreglumaður - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Tvær stöður rannsóknarlögreglumanna við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum

Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eru lausar til umsóknar tvær stöður rannsóknarlögreglumanna með starfsstöð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli, á vegabréfarannsóknarstofu.
Gert er ráð fyrir að skipað verði í aðra stöðuna til næstu 5 ára, frá og með 1. janúar 2019 og sett í hina stöðuna frá sama tíma.

Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur jafnt sem karlar hvattar til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni eru skilríkjaskoðanir, skilríkjarannsóknir, andlitssamanburður, skýrslugerðir og eftirfylgni skilríkjamála fyrir dómi. Afgreiðsla fyrirspurna og erinda frá innlendum sem og erlendum yfirvöldum um skilríkjamál. Úrvinnsla á alþjóðlegum viðvörunum vegna falsana á ferðaskilríkjum. Vinna við skilríkjasýnishornasafn. Fylgjast með þróun skilríkja, öryggisatriðum þeirra og virkni. Fingrafara- og ljósmyndataka af sakamönnum og umsækjendum um alþjóðlega vernd, frágangur, skráning, utanumhald og úrvinnsla. Að fræða starfsmenn vakta í flugstöðvardeild um fölsunarmál og misnotkun skilríkja. Kennsla og þjálfun í skilríkjafræðum fyrir nýliða í flugstöðvardeild sem og fyrir önnur embætti og stofnanir eftir atvikum.

Kveðið er á um verkefni lögreglu í 2. tl. 1. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og um verkefni rannsóknarlögreglumanna í 9. gr. reglugerðar um starfsstig innan lögreglunnar nr. 1051/2006.

Hæfnikröfur
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af skilríkjarannsóknum, hafi sótt námskeið í skilríkjafræðum, búi að þekkingu á öryggisatriðum og fölsunarþáttum skilríkja og hafi góða hæfni til andlitssamanburðar.
Reynsla af rannsóknum mála er kostur. Aukin menntun og önnur reynsla sem nýtist í starfi er einnig kostur. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi yfir að ráða skipulagshæfni, sveigjanleika og vandvirkni í vinnubrögðum, auk frumkvæðis í starfi, færni í samskiptum og hæfni til að vinna undir álagi.

Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnám á vegum lögreglunnar. Þeir þurfa að hafa starfað sem lögreglumenn í að minnsta kosti tvö ár frá því að prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi lauk. 

Þeir umsækjendur sem uppfylla hæfisskilyrðin verða boðaðir í viðtal og umsagna aflað um þá.

Kveðið er á um réttindi og skyldur lögreglumanna í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Starfið er vaktavinna.

Eftirfarandi upplýsingum er beint til umsækjenda. Samkvæmt 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 er mælt fyrir um að engan megi skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.

Auglýsing þessi gildir í 6 mánuði, sbr. ákvæði 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Sækja skal um stöðurnar með rafrænum hætti á vef Starfatorgs, www.starfatorg.is. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að vanda umsóknir sínar. Skal ferilskrá og kynningarbréf fylgja umsókn.
 
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.11.2018

Nánari upplýsingar veitir
Sigurgeir Ómar Sigmundsson - [email protected] - 4442200
Magnús Kristinsson - [email protected] - 4442200

LTSN Lögr. Flugstöðvardeild
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
235 Keflavíkurflugvöllur


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum