Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2017 Dómsmálaráðuneytið

Samið um árangursstjórnun viðsýslumann í Vestmannaeyjum

Lára Huld Guðjónsdóttir sýslumaður og Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri skrifuðu undir samninginn. - mynd

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum og innanríkisráðuneytið hafa gert með sér árangursstjórnunarsamning en tilgangur hans er að festa í sessi ákveðið samskiptaferli milli aðila. Þá á samningurinn að skerpa áherslur um stefnumótun, framkvæmd verkefna, áætlanagerð og leggja grunn að mati á árangri af starfsemi embættisins.

Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri og Lára Huld Guðjónsdóttir sýslumaður skrifuðu undir samninginn. Hliðstæðir samningar hafa verið gerðir að undanförnu við flest embætti sýslumanna.

Embættið sinnir hefðbundnum verkefnum sýslumanns en meðal sérverkefna embættisins má nefna umsjón með löggildingum dómtúlka og skjalaþýðenda. Auk þess sér embættið um að útbúa úrskurði innanríkisráðuneytisins í sifjamálum til birtingar á vefnum urskurdir.is.

Samningnum er ætlað að styrkja beitingu árangursstjórnunar sem stýritækis hjá sýslumannsembættinu. Settir eru mælikvarðar og viðmið í ýmsum flokkum svo sem í stjórnsýslu og þjónustu, mannauði og fjármálum. Má meðal annars nefna að sýslumannsembættin skulu hafa forgöngu um reglulegt samráð við sveitarfélög um fyrirkomulag og samræmingu opinberrar þjónustu í umdæmunum og að gerðar verða reglulegar þjónustukannanir. Samningurinn gildir til fimm ára.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum