Hoppa yfir valmynd
30. júní 2020

Sjúkraþjálfari í endurhæfingarteymi - Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Sjúkraþjálfari í endurhæfingarteymi - Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins


Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir sjúkraþjálfara í endurhæfingarteymi heimahjúkrunar sem staðsett er í Kópavogi. Heimahjúkrun HH sér um hjúkrun í heimahúsum fyrir íbúa í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi. Um er að ræða ótímabundið 50% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1.ágúst 2020 eða eftir nánara samkomulagi


Helstu verkefni og ábyrgð
Sjúkraþjálfari vinnur í þverfaglegu teymi við að aðstoða skjólstæðinga við að vera eins virkir og sjálfstæðir í daglegu lífi og hægt er, þannig að þeir geti verið sem lengst sjálfbjarga á eigin heimili.

Sjúkraþjálfari metur og greinir líkamlega færni og heilsu skjólstæðings sem og stoðkerfisvandamál. Hann veitir stuðning og ráðgjöf til skjólstæðinga og aðstandenda þeirra varðandi hreyfingu og þjálfun. 
Sjúkraþjálfari skipuleggur og veitir þjónustu á sínu fagsviði í samráði við teymi. Hann hefur að leiðarljósi að ná fram þeim endurhæfingarmarkmiðum sem skjólstæðingur setur sér á hverjum tíma og tekur þátt í að endurmeta markmiðin í samráði við skjólstæðing og teymi. 

Sjúkraþjálfari veitir skjólstæðingum og aðstandendum þeirra ráðgjöf varðandi meðferð, úrræði og forvarnir sem stuðla að færni skjólstæðings til að sinna daglegum þörfum sínum. Lögð er áhersla á aðgengilega þjónustu og að skjólstæðingar séu virkir í meðferð.

Sjúkraþjálfari tekur virkan þátt í þverfaglegu samstarfi, handleiðslu, fræðslu og starfsmannafundum. Hann vinnur sjálfstætt við athuganir mat og ráðgjöf.


Hæfnikröfur
- Löggilt starfsleyfi frá landlækni sem sjúkraþjálfari
- A.m.k. 3 ára starfsreynslu sem sjúkraþjálfari
- Geta til að starfa sjálfstætt 
- Þekking á áhugahvetjandi samtalstækni 
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku og enskukunnátta


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun. 

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 


Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 20.07.2020


Nánari upplýsingar veitir
Sigrún Kristín Barkardóttir - [email protected] - 513-6900
Hildur Sigurjónsdóttir - [email protected] - 513-6900



Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Hlíðasmára 17
201 Kópavogur



Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum