Hoppa yfir valmynd
30. janúar 2019

Verkefnastjóri við heilbrigðisvísindasvið

Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar starf verkefnastjóra á heilbrigðisvísindasviði.

Starfið felur í sér aðstoð við upplýsingagjöf, skráningu og almenna stjórnsýslu á sviðinu ásamt öðrum verkefnum tengdum stjórnsýslu sviðsins, almennum skrifstofustörfum og sértækum verkefnum samkvæmt ákvörðun sviðsforseta og þörfum sviðsins hverju sinni. Viðkomandi starfsmaður mun einnig starfa með deildarformönnum og öðrum starfsmönnum sviðsins að umbótum á skipulagi, undirbúningi og framkvæmd náms, eftir þörfum hverju sinni. Hluti af starfi verkefnastjórans verður að halda utan um starfsemi Heilbrigðisvísindastofnunar HA.

Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Sólborg á Akureyri. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri heilbrigðisvísindasviðs.

Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf sem reynir á nákvæmni, samskiptahæfni og fagmennsku. Starfið felst í miklum samskiptum, samvinnu og þjónustu við starfsmenn og nemendur sviðsins. Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri býður upp á nám í þremur deildum, hjúkrunarfræðideild, iðjuþjálfunarfræðideild og framhaldsnámsdeild, þar sem boðið er upp á þverfaglegt framhaldsnám í heilbrigðisvísindum. Endurskipulagning og breytingar á skrifstofu og stjórnsýslu sviðsins standa yfir og er þetta starf hluti af því.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af skrifstofustörfum og þekking og/eða reynsla af verkefnastjórnun er æskileg.
  • Reynsla af þróun og vinnu með gæðaferla er kostur.
  • Þekking á háskólaumhverfinu og opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Góð almenn tölvukunnátta og hæfileiki til að nýta sér þekkingu.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  • Skipulögð, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð, frjó hugsun, rík þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Sveigjanleiki og geta til þess að vinna sjálfstætt og í teymi.

Umsókn skal fylgja:

  • Ítarleg náms- og starfsferilskrá.
  • Staðfest afrit af prófskírteinum.
  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
  • Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur og er æskilegt að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.

Umsóknarfrestur er til 18. febrúar 2019. Umsóknir og fylgigögn skal senda rafrænt á skrifstofu rektors Háskólans á Akureyri á netfangið [email protected]. Ekki er notað staðlað umsóknareyðublað. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara á Akureyri og fjármálaráðherra.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir forseti heilbrigðisvísindasviðs, netfang [email protected].

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um laus störf.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum