Hoppa yfir valmynd
22. júní 2020

Deildarlæknir skurðlækninga

Deildarlæknir skurðlækninga


Laus er til umsóknar 100% staða deildarlæknis á skurðlækningadeild. 
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. október 2020. 
Næsti yfirmaður er forstöðumaður deildar mennta og vísinda. 
Faglegur yfirmaður er forstöðulæknir skurðlækninga. 


Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn störf deildarlæknis - dagvinna og vaktir.
Þátttaka í kennslu og þjálfun læknanema.


Hæfnikröfur
Umsækjandi skal hafa fullgilt íslenskt lækningaleyfi. 
Hæfni á sviði samskipta og samvinnu, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum nauðsynleg.


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám, fyrri störf ásamt upplýsingum um fræðilegar rannsóknir og ritstörf.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins. Sjúkrahúsið á Akureyri er reyklaus vinnustaður.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi.
Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.


Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.07.2020


Nánari upplýsingar veitir
Laufey Hrólfsdóttir - [email protected] - 4630100
Helgi Sigurðsson - [email protected] - 4630100



Unglæknar.
Eyrarlandsvegur
600 Akureyri


Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum