Yfirhjúkrunarfræðingur hjúkrunarsviðs - Blönduós
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduósi, Yfirhjúkrunarfræðingur hjúkrunarsviðs
Staða yfirhjúkrunarfræðings hjúkrunarsviðs á Blönduósi er laus til umsóknar. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. apríl 2020.
Á hjúkrunarsviði eru samreknar þrjár deildir. Deild A sem er blönduð sjúkra- og hjúkrunardeild, deild B sem er hjúkrunardeild og svo dvalardeild. Rýmin eru samtals 34.
Yfirhjúkrunarfræðingur ber faglega, stjórnunarlega og rekstaralega ábyrgð á hjúkrun á hjúkrunarsviði.
Næsti yfirmaður er yfirhjúkrunarfræðingur svæðis á Blönduósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu sem veitt er á hjúkrunarsviði
- Stuðla að þekkingarþróun í hjúkrun með því að hvetja til rannsókna og nýta rannsóknarniðurstöður
- Skipuleggja og stjórna hjúkrunarþjónustu hjúkrunarsviðs og taka þátt í klínísku starfi
- Tryggja að rekstur og starfsmannamál séu í samræmi við fjárhagsáætlun
Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi og a.m.k. 5 ára starfsreynsla við hjúkrun
- Viðbótarmenntun á sviði heilbrigðisvísinda eða stjórnunar er æskileg
- Þekking á RAI-mati æskileg
- Reynsla af stjórnun er æskileg
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu stofnunarinnar www.hsn.is og einnig er hægt að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn fylgi starfsferliskrá og upplýsingar um nám og fyrri störf. Umsækjendur eru auk þess beðnir um að skila kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfi og sýn á starfið.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.02.2020
Nánari upplýsingar veitir
Ásdís H Arinbjörnsdóttir - [email protected] - 455 4100
Guðný Friðriksdóttir - [email protected] - 860 7750
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Blönduós Hjúkrunardeild
Flúðabakka 2
540 Blönduós
Smelltu hér til að sækja um starfið